Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife, telur sig hafa verið lögð í einelti af Covid-19 þar sem hún smitaðist ekki þrátt fyrir að hafa verið ítrekað nálægt smituðum einstakling.
„Ég veit ekki allt um einelti þótt ég hafi orðið fyrir alvarlegu einelti, ekki aðeins á unglingsárunum vegna búsetu minnar í fæðingarstaðnum að Höfðaborg 65 í Reykjavík, heldur einnig löngu síðar er ég flutti til Íslands eftir góð ár í Svíþjóð. Hvorutveggja hefi ég sagt frá í sögu minni, en síðan saga mín kom út fyrir fimm árum síðan hefur ýmislegt gerst sem bendir til að eineltinu sé alls ekki lokið,“ skrifar Anna í pistli dagsins.
„Í ársbyrjun 2020 barst einhver stórfurðulegur kórónuvírus til Evrópu, fljótlega kallaður Cóvið. Fyrsta tilfelli slíks á Spáni greindist á eyjunni La Gomera í lok janúar 2020 og við Íslendingarnir í Los Cristianos fjölmenntum þangað til að skoða þennan furðuvírus, en gripum í tómt. Eftir árangurslausa leit héldum við til baka til Tenerife og fengum okkur Coronabjór á Barnum.“
Hún minnist þess að rúmum mánuði síðar var öllu skellt í lás. „Við sátum um tveggja mánaða skeið nánast eins og í stofufangelsi og máttum búa við takmarkað ferðafrelsi í heilt ár eftir það.Í kringum mig hefur fjöldi fólks smitast að undanförnu, flest náð sér að fullu sem betur fer. Við sátum nokkur saman að sumbli á Önnubar eitt kvöldið og daginn eftir greindist einn úr hópnum með Cóvið, fáeinum dögum síðar konan hans og sömuleiðis varð Helena mín fárveik. Ég var óvarin er ég lét hana taka jákvætt Cóviðtest“
„Síðan þá hefi ég farið í nokkur test og öll neikvæð, sömuleiðis hefur Hörður sonur hennar sem hjúkraði henni í veikindum hennar verið neikvæður, því mér var að sjálfsögðu meinaður aðgangur að heimili hennar meðan á veikindunum stóð. Helena er búin að ná sér, loksins.“
„Ég veit að ég er neikvæð að eðlisfari, en af hverju hefi ég ávallt sloppið svona vel? Getur virkilega verið að þessi veira leggi okkur vonda fólkið í einelti? Ef svo er, takk fyrir að skilja okkur eftir útundan. Loksins er gott að vera útundan. Eða er þetta afleiðing af Vodkakúrnum?“ spyr Anna að lokum.