Það virðist ekki bara tekið út með sældinni að vera íbúi á Tenerife þó að sólin skíni þar töluvert meira en á Íslandi og hitastigið sé nokkuð hærra. Anna lýsti ákveðnum forsendubresti í skemmtilegum pistli sem hún birti á Facebook-síðu sinni um helgina.
„Ég er ósátt. Þegar ég flutti hingað var mér lofað því að í Paradís rigndi aldrei meira en fimm daga á ári. Ég trúði þessu og ákvað þess vegna að setjast hér að,“ segir Anna og bætir við í kaldhæðni:
„Það sem af er árinu 2021 hefur rignt hér í sjö daga, síðast í gærkvöldi er hér gerði skaðræðisregnskúr og himnarnir opnuðust og tæmdu sig niður á okkur jafnt dauðleg sem ódauðleg. Nú erum við búin að fá gott betur en ársskammtinn af rigningu og febrúar rétt byrjaður og ég mótmæli frekari rigningum á árinu 2021, annars fer ég í mál við almættið. Það hlýtur að finnast einhver guðlegur Hæstiréttur sem tekur að sér slík mál.“
Anna er ekki óvön því að skjóta aðeins á íslenska fylgjendur sína heima á klakanum vegna veðurfarsins. Hún segir að hópur Íslendinga hafa komið til Tenerife á miðvikudag til að njóta sólar og sumars en enn sem komið er hafi rigning, kuldi og rok verið áberandi.
„Er nema von að þau hafi haft samband við mig og kvartað. Því miður gat ég ekki verið þeim hjálpleg og benti þeim á að fara í mál við Vita og Heimsferðir og Útferðir og hvað þær heita þessar ferðaskrifstofur? Af hverju heyrist ekkert frá Samvinnuferðum og Landssýn?“
Það er ekki bara rigning sem sett hefur strik í reikninginn. „Í gær var kaldasti dagur sem ég hefi upplifað síðan ég kom til Paradísar. Hámarkshitinn að deginum náði einungis 17°C, en í fyrravetur var lægsti hámarkshitinn 19°C og þá fannst mér kalt,“ segir Anna sem segist hafa keypt sér ullarfrakka um helgina.