Anna Kristjáns minnist þess þegar hun nennti ekki að vinna lengur: „Hætti að röfla og flutti suður á bóginn“

Anna Kristjáns­dóttir, íbúi á Tenerife, rifjar upp þegar hún var enn að vinna hjá Veitum og af hverju hún fékk nóg í pistli dagsins.

„Í minningum gær­dagsins var ég minnt á það er ég nennti enn að vinna, að ein­hver gáfu­menni létu líma eitt­hvert merki á gler­vegginn við hliðina á inn­ganginum að stjórn­stöð Veitna hvar á stóð að þar væri vakt 24. júlí, eða 24/7 eins og stóð á merkinu. Ég var ekki sátt við þetta merki enda taldi ég að við værum á vakt allan sólar­hringinn allan ársins hring, en ekki bara þennan eina dag,“ skrifar Anna.

„En svo bjargaði Orku­veitan and­litinu þegar ég nennti ekki lengur að vera á vaktinni, hætti að röfla og flutti suður á bóginn, en merkið var á­fram þarna að ég held þar til stjórn­stöðin flutti vegna við­gerða á hús­næðinu. Starfs­fólkið á svo alla mína sam­úð og kær­leika og verður vonandi á­fram á vaktinni allan sólar­hringinn, allan ársins hring, en ekki bara 24. júlí eins og merkið gaf í skyn þótt ég nenni ekki lengur að vinna,“ bætir Anna við og deilir með mynd af Los Cristianos sem sýnir að hitinn þar í dag er 32 gráður.

Dagurinn í gær byrjaði hins vegar hjá Önnu með heim­sókn frá litlu systir sinni.

„Lilja systir kom við í heim­sókn í gær með hann Texas el Per­ró, öðru nafni Kálf­mund Eyrna­stóran og byrjaði strax að tauta. “Það er orðið býsna ó­þrifa­legt hjá þér, þú verður að fara að gera eitt­hvað í þessu.” “En For­múlan,” and­mælti ég. “Hún er að byrja klukkan tvö og svo eru 32°C úti og allt­of hlýtt til að leggjast í erfiðis­vinnu.”

„Ég fékk náðar­sam­legast að horfa á For­múluna, en á meðan dundaði Lilja sér við að taka til og strjúka af og það stóð á endum að þegar For­múlunni lauk var kominn tími til að skúra svo ég gat slökkt á sjón­varpinu og fært mig út á svalir á meðan Lilja skúraði innan­dyra. Ekki fékk ég mikinn frið á svölunum með Texas því Lilju sóttist vel verkið og ekki leið á löngu uns við Texas vorum rekin inn á meðan hún skúraði svalirnar.“

„Ég var búin að mæla mér mót við fólk úti í bæ, en var orðin svo þreytt eftir dugnaðinn hjá Lilju að ég komst hvergi og endaði með að fá mér sí­estu eftir hama­ganginn hjá henni. Ég náði því samt að senda skila­boð til fólksins um að þau gætu hitt mig heima.

For­múlan fór vel og auð­vitað vann Hollendingurinn Max Ver­stappen, en síðan voru Mercedes Benz í öðru og þriðja sæti, en Mjall­hvít fékk samt ekki að taka þátt í keppninni enda of langt að fara norður til Frakk­lands auk þess sem að vélin er of stór í Mjall­hvíti og þyngdin að auki meir en þre­falt meiri en þyngdin er í For­múlu­bílum,“ skrifar Anna.