Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife, skrifar um þjóðhátíð í pistli dagsins og segir að í dag má segja að sé aðfangadagur verslunarmannahelgar.
„Sumir eyjaskeggjar á Norðurey kunna kannski að mótmæla mér og benda á að aðfangadagur verslunarmannahelgar sé á föstudeginum fyrir helgina, en því svara ég einfaldlega með því að húkkaraballið er í kvöld og þar með byrjar þjóðhátíðin þótt hún verði ekki formlega sett fyrr en á morgun, rétt eins og að aðfangadagur jóla er 24. desember þótt flestir telji jólin byrja á jóladag. Áður en þið byrjið að röfla yfir þessari staðhæfingu, bendi ég á að ég er ekki á áttræðisaldri. Ég byrja ekki á áttræðisaldri fyrr en 30. desember næstkomandi. Svo megið þið rífast endalaust á ykkar síðum yfir staðhæfingum mínum, en látið mína síðu í friði. Ég er nefnilega ekki fjölmiðill svo ef þið viljið kvarta, hringið þá í síma 5881994, en símatíminn þar er milli 9 og 12 alla virka daga,“ skrifar Anna.
„Það stefnir í ljómandi góða þjóðhátíð og mér skilst að maðurinn sem sér um innipúkann í Reykjavík ætli líka að mæta til Eyja, enda hefur hann sjálfur sagt að öll fíflin fari á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Sjálf ætla ég að skrópa rétt eins og mörg undanfarin ár. Því miður.
Stóra spurningin er samt þessi: Hvernig verður veðrið um helgina? Hversu kalt verður og hversu blautt verður þarna norðurfrá? Það sem ég fæ út úr veðurspánni þarna í norðrinu er að það verði umhleypingasamt, kalt, vindasamt og blautt með köflum, þó síst í Vestmannaeyjum þar sem hefur ekki snjóað síðan snemmsumars.“
„Hér í suðrinu, nánar tiltekið í Paradís verðum við einnig að sætta okkur við kulda á nóttunni þar sem hitinn getur farið niður í 20°C á nóttunni, þ.e. ef veðurspáin stenst. Einasta bleytan sem mun hrjá okkur er helst eiginn sviti þegar við hreyfum okkur um of. En við höfum ráð við slíku sem er að drekka meira Dorada. Hafa skal samt í huga að hitabylgjan dásamlega sem kom um síðustu helgi er að yfirgefa okkur að sinni. Við skulum samt vona að hún komi fljótlega aftur, enda er flíspeysan góða komin ofan í skúffu og verður vonandi ekki tekin upp aftur fyrr en í nóvember,“ skrifar Anna.
„Það er fleira sem við missum af, því þótt margar séu brekkurnar hjá okkur, verður enginn brekkusöngur og enginn Árni Johnsen til að gleðja okkur. Ég frétti reyndar af ónefndum arftaka hans við brekkusöng á bar einum hér í fyrra, en ég skrópaði.
Með þessu sendi ég íslensku þjóðinni mínar innilegustu samúðarkveðjur vegna veðursins um helgina um leið og ég ligg í sólbaði á bekknum í dag. Helvítis nagladekkin,“ skrifar Anna að lokum.