Anna Kristjáns leið­réttir al­gengan mis­skilning: „Rama­kveinið er byrjað aftur“

Anna Kristjáns­dóttir íbúi á Tenerife leið­réttir al­gengan mis­skilnings í kringum sölu Símans á Mílu í nýjum pistli frá Para­dís.

„Rama­kveinið er byrjað aftur. Kapítal­istarnir ætla að sölsa undir sig eignir Símans öðru sinni, líf­eyris­­sjóðirnir og smá­hlut­hafarnir sitja uppi með sárt ennið og við líf­eyristakarnir fáum skellinn.Höfum samt eitt í huga. Það eru allt aðrir eig­endur að Símanum í dag en eignuðust hann í einka­væðingar­brjál­æðinu eftir síðustu alda­­mót og gleymdu að borga and­virði Símans til ríkisins. Eig­endur Símans í dag eru líf­eyris­­sjóðirnir að stærstum hluta og svo fá­einir minni fjár­­festar sem ætluðu sér að græða á hluta­bréfa­­markaði saman­ber kenni­­töluna sem er frá 2007,“ skrifar Anna.

„Fyrir nokkru síðan gaf Síminn út frétta­til­­kynningu þess efnis að búið væri að selja grunn­línu­­netið Mílu og til stæði eftir á­­kvörðun hlut­hafa­fundar að skila and­virði sölunnar til hlut­hafa. Hófu þá margir að kvarta yfir mann­vonsku Símans og eru sumir enn að fá­einum dögum fyrir hlut­hafa­fundinn.“

„Sjálf hefi ég verið í við­­skiptum við Símann í ára­tugi upp­­haf­­lega frá því um 1975 er ég fékk síma, en reyndar miklu fyrr sem frí­­merkja­­safnari og átti góð við­­skipti við Póst og síma á sjöunda ára­tug síðustu aldar og fram á þennan dag. Eftir flutning minn til Ís­lands árið 1996 hefur Síminn verið minn helsti fjar­­skipta­­aðili, með síma, far­­síma og net og er svo enn í dag og stendur ekki til að breyta því þótt ég sé vissu­­lega með við­­skipti við tvö spænsk fjar­­skipta­­fyrir­­­tæki auk Símans, Orange, en Mo­vistar hvað Mjall­hvíti mína snertir.
Ég á fá­ein hluta­bréf í Símanum og hefi átt í nokkur ár og þau hafa lítið gefið af sér, þó eitt­hvað. Svo var Míla seld og sú til­­laga lögð fyrir hlut­hafa­fund að greiða megnið af sölu­and­virðinu til hlut­hafa, en um leið að fækka hlutum í fé­laginu úr 7,3 milljörðum hluta í 4,4 milljarða hluta,“ skrifar Anna.

„Vissu­­lega fæ ég nokkrar krónur inn á banka­­reikninginn minn verði til­­laga til hlut­hafa­fundar sam­þykkt, en um leið mun hlutur minn í Símanum rýrna sem því nemur, enda má segja að Síminn sé 40% verð­minni eftir söluna á Mílu. Verði til­­lagan sam­þykkt sem ég efa ekki að verði, þá verður verð­­mæti Símans lækkað sem er eðli­­legt þegar 40% af and­virði hans hafa verið seld. Hluta­bréfa­­eign mín í Símanum mun minnka um 40%, en mis­munurinn verður greiddur út sem "arður," heldur Anna á­fram.

„Það myndi eitt­hvað heyrast í sam­­keppnis­­fyrir­­­tækjunum, Voða­fón, Nóva og fleirum og þá helst Sam­­keppnis­­eftir­­litinu ef Síminn tæki þá á­­kvörðun að lækka gjöld við­­skipta­vinanna sem þessu nemur á kostnað hlut­hafanna í stað þess að greiða sölu­and­virðið út sem arð. Því er þetta mjög eðli­­leg ráð­­stöfun og ég mun ekki græða mikið ef nokkuð vegna eignar­­aðildar minnar að fyrir­­­tæki sem hefur rýrnað í verði um 40%. Líf­eyris­­sjóðirnir munu heldur ekki græða mikið né tapa á þessum gjörningi. Það er ein­fald­­lega verið að breyta hluta­bréfum í peninga, rétt eins og ég breytti peningum í hluta­bréf með kaupum á huta­bréfum í Símanum á sínum tíma.“

„Vildi bara leið­rétta al­­gengan mis­skilning.Er ekki annars gott vetrar­veður á Ís­landi?“ skrifar Anna að lokum.