Anna Kristjáns laumaði sér í COVID-bólusetningu með lúmskri aðferð

Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife, greinir frá því á Facebook-síðu sinni að hún hafi fengið tíma í bólusetningu gegn COVID-19 í morgun.

Anna segist hafa rölt á heilsugæsluna um eftirmiðdaginn í gær og borið sig illa; hún hefði ekki séð börnin sín í tvö ár og hafi beðið um bólusetningu svo hún gæti hitt þau.

Anna segir að þjónustufulltrúarnir hafi horft til baka með samúðarsvip í augunum og sagt henni að hún væri of ung fyrir sprautuna.

„Ég horfði á þær skilningssljóum augum, þóttist ekkert skilja, fór að hágráta og krókódílatárin runnu niður kinnarnar og hluttekningarsvipur fulltrúanna leyndi sér ekki. Svo greip ég til gamals herbragðs og tók heyrnartækin úr eyrunum á mér og veifaði framan í þær,“ segir Anna sem er jafnan með húmorinn að vopni í skrifum sínum.

Hún bætir við að það sé merkilegt hvað gömul heyrnartæki geta haft mikil áhrif á viðmælendur hennar.

„Kannski var ég ekki alveg eins ung og ég þóttist líta út fyrir að vera og þær fylltust samúð með vesalings heyrnardaufri konunni sem hafði ekki séð litlu börnin sín í tvö ár (sem er næstum því rétt, en börnin eru 45, 43 og 39 ára). Að lokum féllust þær á að gefa mér tíma í sprautu í dag klukkan 09:35. Ég fór nánast dansandi út úr heilsugæslustöðinni,“ segir Anna sem átti tíma í sprautu í morgun.

Anna er fædd árið 1951 og verður því sjötug, hvorki meira né minna, síðar á þessu ári. Ef hún byggi á Íslandi væri hún að öllum líkindum búin að fá fyrri skammt bóluefnisins.