Anna Kristjáns játar: „Ég skrökvaði að alþjóð í fyrradag“

Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife og einn skemmtilegasti pistlahöfundur landsins, gerir játningu í pistli dagsins á Facebook-síðu sinni.

„Ég játa fúslega að ég skrökvaði að alþjóð í fyrradag er ég, fyrst í viðtali við K100 og síðar sama morgun að fréttamanni Ríkisútvarpsins þess efnis að lítið væri um smit hér í Paradís. Ég hefi mér samt til málsbóta að ég vissi ekki betur á þeirri stundu. Síðar sama dag komu nýjustu tölur um smit hérna og höfðu þau þá margfaldast frá deginum áður og enn jukust þau í gær og voru þá komin upp í 1000. Þar með er smittíðnin farin að nálgast tölurnar á Íslandi,“ segir Anna í pistlinum.

Sjá einnig: Svali á Tenerife segir Íslendingum að örvænta ekki

Eins og flestir vita munu þúsundir Íslendinga verja jólunum á eyjunni fögru. Margir supu þó hveljur þegar í ljós kom að yfirvöld hefðu hert samkomutakmarkanir vegna fjölgunar kórónuveirusmita. Það er ekki góð tilhugsun að fara út í óvissuna.

Anna Kristjáns segir Íslendingum sem eru á leið til Tenerife þó að anda rólega. Smittíðnin sé mun lægri á túristasvæðum í suðri en það sem gengur og gerist í Santa Cruz og La Laguna.

„14 daga smittíðnin var 332 í Adeje, en 225 í Arona. Til samanburðar var hún 469 á Íslandi í gær en Tenerife öll um 440. Þess má geta að Los Cristianos og Las Americas tilheyra bæði Aronahreppi,“ segir Anna.

Hún bætir svo við að í gær hafi verið tilkynnt að hert yrði á takmörkunum á eyjunni sem og á Gran Canaria frá og með miðnætti í kvöld.

„Erum við nú komin á það sem kallað er Level 3. Það þýðir að nú mega mest sitja sex við sama borð á veitingastöðum, barir skulu loka í síðasta lagi klukkan 02.00 og takmarkaður fjöldi á ströndum og í sundlaugum. Einhverjar fleiri takmarkanir verða í gildi sem ég nenni ekki að telja upp hér,“ segir hún.

Anna segir að íbúar og aðrir gestkomandi geti huggað sig við það að þessar takmarkanir eru ekki mjög íþyngjandi fyrir flesta umfram það sem hefur verið að undanförnu. Íslendingum sé því alveg óhætt að koma til Paradísar eins og Anna kallar Tenerife.