Anna Kristjáns gefur Eurovision-lagi Daða ekki háa einkunn

„Ég á engan hatt og því þarf ég ekki að éta hattinn minn ef svo illa fer að lagið kemst áfram í lokakeppni Júróvisjón árið 2021,“ segir Anna Kristjánsdóttir, Tenerife-búi og samfélagsrýnir, í færslu á Facebook-síðu sinni sem birtist í gærmorgun.

Þar gerði hún frumflutning Daða og gagnamagnsins á Eurovision-framlagi okkar Íslendinga að umtalsefni. Lagið, Ten Years, þykir nokkuð grípandi eins og Daða er von og vísa og er lagið nokkuð ofarlega hjá evrópskum veðbönkum.

Margir telja að Daði hefði borið sigur úr býtum hefði keppnin í fyrra farið fram með lag sitt Think about Things, en vegna kórónuveirufaraldursins var keppninni hins vegar slaufað eins og frægt er orðið.

Anna virðist ekkert sérlega hrifinn af lögum Daða ef marka má færslu hennar á Facebook.

„Mig langar til að gera játningu. Mér fannst lagið sem vann íslensku söngvakeppnina í fyrra ömurlegt, búningarnir fáránlegir og gervihljóðfærin bjánaleg. Þrátt fyrir að einhverjir áttu von á að lagið myndi sigra Júróvisjón í fyrra, var ég aldrei sannfærð og taldi að lagið myndi eiga erfitt með að ná í lokakeppnina,“ segir hún og heldur áfram:

„Nú er lagið komið aftur, aðeins breytt og örlítið skárra, en samt sömu fáránlegu búningarnir og bjánalegu gervihljóðfærin á sviðinu í gærkvöldi og höfum það í huga að öll hin sem sáust í myndbandinu mega ekki vera með á sviðinu í Rotterdam. Það er samt enn von um að laga umgjörðina og henda gervidótinu og vinna hlutina faglega og verður það vonandi gert.“