Anna Kristjáns er brjáluð: „Ég næ ekki upp í nef mér af reiði“

Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife, er brjáluð að eigin sögn.

„Eins og lesendur mínar vita, þá er ætlunin að taka sér frí frá skriftum á sunnudögum, en í gær varð ég svo hneyksluð að ég næ ekki upp í nef mér af reiði,“ segir hún á Facebook.

„Flugfélagið sem ég á í félagi við fleira fólk ætlar að skipta um ham í byrjun næsta árs. Í fyrstu hélt ég að um væri að ræða síðbúið aprílgabb er ég sá flugáhugafólk gera grín að hamskiptunum á netinu, en svo sá ég sagt frá þessu í virtum fjölmiðlum svo ég neyddist til að trúa sögunum. Og ég varð brjáluð í skapinu. Að auki hafði ég aldrei gefið samþykki fyrir þessum breytingum,“ segir hún og vísar til nýrra merkinga á vélum Icelandair.

Anna segir að hún geri sér grein fyrir því að vélarnar séu orðnar gamlar. „En nú á að vinna ljótleikaverðlaunin að auki með því að mála skrokk vélanna í líkingu við hið lítilsvirta lággjaldaflugfélag Ryanair, en einhver furðulegheitamálning á stélum flugvélanna. Þar mun lággjaldaflugfélagið þó hafa vinninginn með skemmtilega máluðu stéli,“ segir Anna.

„Ég er í bullandi fýlu, en um leið viðurkenni ég að ég mun ekki þurfa að horfa á ljótleikann þegar ég ferðast með félaginu mínu, sem betur fer.“

Það er þó ekki það eina sem er að: „Hver kom frá Íslandi í gær og tók rigningu með sér???“