Anna Kristjáns ein­mana á sjö­tugs­af­mælinu: „Hætta á ég fari ein í mína af­mælis­veislu á Bæjarins Bestu“

Anna Kristjáns­dóttir, íbúi á Tenerife, er sjö­tug í dag. Hún greinir frá þessu á face­book þar sem segist ekki lengur vera ung­lingur.

„Ég viður­kenni sök mína. Ég telst ekki lengur vera ung­lingur heldur full­orðin. Það var víst á þessum degi fyrir 70 árum síðan sem ég kom í þennan heim eins og frelsandi engill og for­eldrarnir horfðu á ný­fætt barnið í jötunni (sic!) og sögðu hvort við annað: “Full­komnun er náð. Við þurfum ekki að gera fleiri til­raunir til að búa til hina full­komnu mann­eskju”. Með fæðingunni hættu þau að gera það og snéru sér að öðrum skemmti­legri á­huga­málum en að búa til börn,“ skrifar Annar.

„Ég ætla ekkert að rifja upp hið mjög svo hamingju­ríka upp­eldi mitt hér og nú. Það hefur þegar verið fært til bókar og gefið út og grunar mig að tals­vert sé enn til af upp­lagi bókarinnar á hola­bok.is.“

Í til­efni af af­mælis­deginum fór hún í nagla­snyrtingu og augn­háraplokkun hjá Krist­rúnu frænku sinni og hár­litun hjá Erlu. „Helena dró mig svo í skó­búð og valdi á mig nýja spari­skó og svo eina í slabbið á Ís­landi að vetri til svo nú má ég henda gömlu Ís­lands­hæfu spari­skónum.“

„Af­mælis­dagurinn stefnir í að verða nokkuð enda­sleppur. Sumir eru í sótt­kví, aðrir í sjálf­skipaðri sótt­kví og fyrir bragðið er ó­mögu­legt að safna saman nánustu fjöl­skyldu­með­limum. Ég tek samt alveg á móti gjöfum þótt engin verði af­mælis­veislan fyrr en síðar, enda fjöldi smitaðra orðinn geig­væn­legur þótt sjálf hafi ég ekki miklar á­hyggjur. Tvö barna minna teljast í á­hættu­hóp, þar á meðal sonur minn sem er með gjafa­nýra. Fyrir bragðið er hætta á að ég fari ein í mína af­mælis­veislu sem er þá eðli­legast að verði haldin á Bæjarins bestu,“ skrifar Anna síðan.

„Ég hefi á­hyggjur af einu til við­bótar. Í dag er síðasti dagurinn sem öku­skír­teinið mitt er í gildi. Ég er að vísu búin að sækja um endur­nýjun og fara í læknis­skoðun, en komst að því fyrir þremur vikum síðan að það tekur heilan mánuð að út­búa nýtt skír­teini. Spán­verjar eru sko ekkert að flýta sér við slíka hluti,“ bætir hún við áður en hún þver­neitar fyrir það að vera sjö­tug.

„Að lokum vil ég í­treka eitt. Það er bara bull að ég sé sjö­tug í dag. Ég er nefni­lega bara 26 ára og verð ekki 27 fyrr en 24. apríl næst­komandi. Ég endur­fæddist nefni­lega þann dag árið 1995.“

Hægt er að lesa færsluna í heild hér.