Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife, hefur heldur betur haft heppnina með sér í Happdrætti Háskóla Íslands á árinu. Eins og kunnugt er var 110 milljóna króna risavinningur dreginn út á föstudag og þó Anna hafi ekki haft heppnina með sér þar vann hún þó annan nokkuð myndarlegan vinning.
„Ég missti af stóra vinningnum í Happdrætti Háskólans, en fékk 100.000 í sárabætur, reyndar annar 100.000 króna vinningurinn sem ég fæ þar á árinu 2021,“ sagði Anna í dagbókarpistli sínum á Facebook í gær.
Þetta ætti að koma sér vel enda fær hún enga desemberuppbót, ekki frekar en aðrir sem lifa á lífeyrissparnaði.
„Nú er ljóst að ég spila frítt þar fram á mitt árið 2024. Ég er farin að halda að það sé rétt sem þeir segja að 70% innkomunnar fari í útborgun vinninga,“ segir Anna.
Eins og fram kom í fjölmiðlum á föstudag var það fjölskyldufaðir á Vesturlandi sem vann stóra vinninginn, en hann hefur verið miðaeigandi í áratugi. Þetta var stærsti vinningur sögunnar í Happdrætti Háskóla Íslands og var þátttakan eftir því, en ekki hafa selst fleiri miðar í aldarfjórðung.