Anna Kristjáns á tímamótum og hamingjuóskum rignir yfir hana

Anna Kristjánsdóttir, þekktasti Íslendingurinn á Tenerife, stendur á ákveðnum tímamótum en í dag eru liðin 28 ár síðan hún gekkst undir aðgerð til leiðréttingar á kyni.

„Mig langar til að ræða minningar. Ég vil þó taka fram að þegar þessi pistill birtist klukkan níu að morgni á ég engar minningar frá þeirri stundu fyrir 28 árum síðan sem betur fer. Á þeirri stundu var ég nefnilega á skurðarborðinu á Karólinska sjúkrahúsinu í Solna (Stokkhólmi) og var í aðgerð til leiðréttingar á kyni,“ segir Anna á Facebook-síðu sinni en hún hefur haldið fylgjendum sínum upplýstum um lífið á Tenerife með reglulegum pistlum sem njóta mikilla vinsælda.

„Þegar ég vaknaði loksins á uppvakningunni einhverjum klukkustundum síðar, byrjaði ég á að athuga hvernig staðan væri á milli fóta mér. Þar reyndist allt vera eins og það átti að vera, fermingarbróðirinn farinn og ég fylltist einhverri sársaukablandinni sælutilfinningu. Það er nefnilega dálítið sárt líkamlega að fara í gegnum slíka aðgerð,“ segir hún en telur sig engu að síður heppna.

„Það sem ég gekk í gegnum þessa dagana var samt hátíð miðað við svipaðar aðgerðir á árum áður. Þannig lýsti April Ashley (1935-2021) sársaukafullum dögunum sem fylgdu eftir aðgerð hennar árið 1960 sem nánast óbærilegum og svipaða sögu sagði Caroline Cossey (f 1954). Aftur á móti talaði Ian Morris (1926-2020) ekkert um sársaukann í sjálfsævisögu sinni Conundrum, þegar hún fór í gegnum samkonar aðgerð árið 1974, um svipað leyti og Caroline Cossey svo nokkrar fyrirmyndir mínar séu nefndar, þó að ótalinni uppáhalds fyrirmyndinni minni Lili Elbe (1882-1931), en hún reyndi að ná fullkomnun í sínu ferli sem kostaði hana lífið í september 1931.“

Anna rifjar upp að hún hafi fengið mænudeyfingu sem varð til þess að sársaukinn var nánast enginn og þakkar hún almættinu fyrir þá náð sem fylgir mænudeyfingu á slíkum stundum.

„Vissulega fylgdu ýmsar aukaverkanir, en þær voru smáatriði í samanburði við lýsingar annarra transkvenna áratugum á undan mér á líðan sinni fyrstu dagana eftir aðgerðina.

Síðan þá eru liðin 28 ár.“

Anna viðurkennir að hún hafi aldrei ætlað sér að auglýsa aðgerðarferli sitt út á við en einhvern atvikaðist það svo að hún varð þekkt í Svíþjóð sem formaður sænska transfélagsins Benjamin sem var á þeim tíma helsti málsvari transsexual fólks í Svíþjóð og síðan á Íslandi haustið 1994 með frægu viðtali í Nýju lífi.

„Þegar ég hugleiði málin eftirá, 28 árum síðar, horfist ég í augu við þá einföldu staðreynd að ég hefði aldrei getað dulist lengi í íslensku samfélagi með þögnina að vopni. Það þurfti einhver að koma í dagsljósið með tilfinningar sínar, en úr því að sú fyrsta íslenska sem fór í gegnum aðgerðarferli til leiðréttingar á kyni vildi ekki koma fram opinberlega þótt hún hafi aldrei neitað því, þá þurfti einhver sem kom á eftir að tjá sig. Það lenti bara óvart á mér að koma út opinberlega,“ segir Anna sem endar pistilinn á þessum orðum:

„Frá því 24. apríl 1995 á ég tvo afmælisdaga, fæðingardaginn 30. desember 1951 og daginn sem ég hóf nýtt líf fyrir alvöru, 24. apríl 1995. Ég held uppá þá báða afmælisdagana.“

Óhætt er að segja að hamingjuóskum með daginn hafi rignt yfir Önnu, enda sannur brautryðjandi og ljósberi fyrir þá sem á eftir henni hafa komið.