Anna Kristjáns á tímamótum: „Eins og fífl fór ég eftir þessum ráðum og hlýddi“

Anna Kristjánsdóttir, þekktasti Íslendingurinn á Tenerife og fastagestur á netmiðlum landsins, fagnar þeim tímamótum að í dag birtist pistill númer þúsund af ævintýrum hennar í Paradís, eins og hún kallar Tenerife.

„Í þúsund daga hefi ég birt daglega pistla héðan frá Paradís, þó að meðtöldum þeim dögum sem ég hefi skroppið til átthaganna. Það eru þó ekki komin þrjú ár, en það verður þegar dagarnir verða orðnir 1096 þannig að enn vantar rúma þrjá mánuði upp á árin þrjú,“ segir Anna sem hefur haldið fylgjendum sínum upplýstum með skemmtilegum og líflegum pistlum.

Hún rekur svo ástæður þess að hún ákvað að byrja að skrifa dagbókarfærslur sínar og birta þær á Facebook.

„Upphaflega var alls ekki ætlunin sú að skrifa langan pistil á hverjum morgni, heldur einungis að segja frá þessu broslega og skemmtilega í umhverfinu einu sinni á dag, en fljótlega var farið að kvarta við mig: “Hvar er pistillinn minn, ég kemst ekki framúr fyrr en ég hefi lesið hann”. Eins og fífl fór ég eftir þessum ráðum og hlýddi og nú eru semsagt komnir þúsund dagar af bulli frá Paradís.“

Fylgjendur Önnu þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að fá ekki sinn daglega skammt því hún ætlar að halda ótrauð áfram. Kveðst hún enn hafa gaman af því að skrifa og dunda sér við eitthvað í tilgangsleysi ellinnar, eins og hún segir sjálf.

„Ekki nenni ég að vinna og vafamál að auki hvort ég fengi nokkuð að gera. Því er einfaldast að ég hegði mér áfram að hætti Münchausens baróns og held áfram að semja lygasögur á meðan einhver nennir að lesa bullið frá mér, en lesöndum mínum mun fækka stöðugt uns engin verður eftir,“ segir hún á léttu nótunum.