Anna Jóna birti færslu á Facebook fyrr í vikunni sem vakið hefur gríðarlega mikla athygli, þar greinir hún frá því að hún hafi fengið útborgað eftir að hafa unnið vaktavinnu kvöld-, helgarvaktir og rauða daga. „Suma daga er ég í vinnunni frá 8-23 afþví það sárvantar mannskap,“ segir hún.
Útborgunin var: 264 þúsund krónur.
„Fyrir að hugsa um eldri borgara, fyrir að þrífa þegar þau kúka á gólfið, þegar þau pissa út í horn.
Fyrir að hugga þau þegar þau gráta, fyrir að lesa þau eða syngja í svefn.
Fyrir að raka og klæða og þvo þeim sem deyja og fyrir að hlusta á og hugga aðstandendur.
Fyrir að mata fólk sem er hrætt og vill fara heim, fyrir að grípa þau þegar þau detta og fylgja þeim þegar þau eru í göngutúrum á slóðum fortíðar,“ segir hún.
Anna Jóna vinnur samkvæmt kjarasamningi SFV og hjúkrunarheimila.
„Ég hughreysti þau þegar þau vita ekki hvar þau eru, sakna barnanna sinna og löngu dáinna vina, ættingja, maka og þegar þau eru óhuggandi af hræðslu afþví þau skilja ekki lengur neitt í kringum sig.
Þau eru hrædd við vatnið í sturtunni, svo ég þvæ þeim með þvottapoka.
Síðustu dagana í lífi fólksins sem skapaði allt sem við höfum byggt á held ég í hendina á þeim, græt með þeim og hlæ með þeim.“
Hún er ekki sátt við útborgunina og segir einfaldlega: „Fokk ðis.“
Samstarfskona hennar er í sömu sporum: „Að sama skapi vann ég næturvaktir 23.12.-30.12. Og fékk fyrir rauðu dagana 18.288 krónur aukalega. Ég var vaktstjóri yfir hátíðarnar, með 40 manns, heilt hús og tvo starfsmenn. Ég fékk 272 þúsund útborgað.“