Anna Kristjánsdóttir hefur haldið fylgjendum sínum á Facebook upplýstum um lífið á Tenerife. Anna flutti þangað í fyrrahaust og hefur haft það býsna gott. Hún er þekkt fyrir skemmtilegar og líflegar frásagnir á Facebook-síðu sinni og í morgun kætti hún vini og vandamenn með skemmtilegri sögu.
„Fór út með ruslið í gær. Slíkt þykir venjulega ekki í frásögur færandi, ekki heldur í útgöngubanni. Ég var ekki með neina vasa á fötunum hjá mér svo ég var með lyklakippuna í annarri hendinni, en var með poka með flokkuðum plastflöskum og dósum í sömu hendi, en í hinni poka með lífrænu og annan með gleri. Um leið og ég sveiflaði pokanum með plastinu að opinu á plastgámnum gerðist eitthvað, pokinn fór á sinn stað í gámnum og hluti lyklakippunnar með, en ég hélt áfram á hluta lyklakippunnar en án lykla,“ segir Anna sem birtir mynd af gámnum.
Hún segir að lyklahringurinn með lyklunum hafi horfið niður í hyldýpi gámsins og ekki sést síðan.
Anna segir að sem betur fer hafi hún ekki lokað hliðinu að porti blokkarinnar á eftir sér. Hún komst því heim aftur eftir að systir hennar opnaði fyrir henni.
„Sem betur fer átti ég aukalegt lyklasett sem hafði nýlega verið tekið úr notkun svo ég lifi af þessa óheppni mína,“ segir Anna sem endar færsluna á þessum skilaboðum.
„Muna að kaupa aldrei aftur lyklakippu í Kínabúð, ekki einu sinni þótt hún sé með nafninu þínu áletruðu á rautt hjarta.“
Dagur 248 og dagur 36 í einangrun. Fór út með ruslið í gær. Slíkt þykir venjulega ekki í frásögur færandi, ekki heldur...
Posted by Anna Kristjánsdóttir on Sunnudagur, 19. apríl 2020