Anna í kröppum dansi á Spáni: „Hugsa með skelfingu til þess sem hefði getað gerst“

„Ég hugsa með skelfingu til þess sem hefði gerst ef hann hefði fallið á hliðina og síðan rennt beint undir bílinn hjá mér,“ segir Anna Kristjáns­dóttir. Segja má að snör við­brögð Önnu hafi forðað ungum manni frá því að slasast illa á Tenerife í gær.

Anna segir frá þessu í færslu á Face­book-síðu sinni. Anna keypti sér á dögunum for­láta blæju­bíl og á­kvað hún að nýta tæki­færið og skeppa upp til El Teide, en Teide er hæsta fjall Spánar og raunar eitt af hæstu eld­fjöllum heims.

Með Önnu í för voru tvær vin­konur og ætluðu þær að njóta veður­blíðunnar og náttúru­fegurðarinnar í ná­grenni fjallsins.

„Það eru margar blind­beygjur á leiðinni upp í há­lendið og því ók ég mjög gæti­lega og þar sem við nálguðumst eina blind­beygjuna á að­eins 40 km hraða kom skyndi­lega mótor­hjól fyrir blind­beygjuna á nokkurri ferð og á vit­lausri ak­rein og stefndi beint á mig,“ segir Anna sem snar­negldi niður.

„Strákurinn á mótor­hjólinu fipaðist og missti næstum stjórn á hjólinu, en náði sem betur fer stjórninni á því aftur og rétt náði að komast fram­hjá kyrr­stæðri mér, en skelfing var erfitt að sjá hann sveiflast á hjólinu áður en hann náði stjórn á að­stæðum. Ég hugsa með skelfingu til þess sem hefði gerst ef hann hefði fallið á hliðina og síðan rennt beint undir bílinn hjá mér.

Eins gott að ég stoppaði strax því annars hefði slys ekki verið um­flúið,“ segir Anna sem kveðst einnig vera þakk­lát fyrir það að hafa ekki verið á meiri ferð en raun ber vitni.