Anna hrósar Kristrúnu í hástert: „Yndislegt að sjá hve hægrimenn eru hræddir við hana“

Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife, fylgist vel með þjóðmálaumræðunni hér á landi þó hún sé búsett í öðru landi.

Í nýrri færslu á Facebook-síðu sinni gerir hún Kristrúnu Frostadóttur, þingkonu Samfylkingarinnar, að umtalsefni en hún hefur komið býsna sterk inn í íslensk stjórnmál að undanförnu.

„Um síðustu Alþingiskosningar kom ný manneskja fram á sjónarsviðið og varð alþingismaður Samfylkingarinnar fyrir hönd Reykjavíkurkjördæmis suður, ung kona og myndarleg og með talandann fyrir neðan nefið. Hún talaði yfirvegað, ekki með vélbyssukjaft Sjálfstæðiskvenna sem voru nýútskrifaðar úr Stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins og hún virtist vera með allt á hreinu og svarar öllum ásökunum án þess að hika,“ segir Anna og bætir við að hún að þekki Kristrúnu ekki neitt.

„Hefi aldrei hitt hana, en samt er ég fyrir löngu farin að bera mikla virðingu fyrir henni. Það sem samt er jákvæðast við hana er hve illaþenkjandi hægrisinnar virðast hata hana. Á Facebook sé ég endalausa pósta frá öfgasinnuðum hægrimönnum sem og skrýmsladeild Sjálfstæðisflokksins þar sem reynt er að gera lítið úr henni og allt gert til að sverta ásjónu hennar í augum almennings,“ segir Kristrún um þessa 33 ára gömlu þingkonu sem gæti náð býsna langt í pólitíkinni á næstu árum.

„Það er yndislegt að sjá hve hægrimenn eru hræddir við hana og nota hvert það tækifæri sem gefst til að ljúga upp á hana sökum. Hún á fáeina hluti í Kviku banka og þarafleiðandi ákveða hægribullurnar að hún hljóti að hafa keypt hluti í Íslandsbanka, ef ekki sjálf, þá í gegnum Kvikubanka þar sem hún er ekki í stjórn. Sjálf á ég hluti í tug íslenskra fyrirtækja, en fékk samt ekki að kaupa í Íslandsbanka í gegnum klíku Bjarna Ben, ekki frekar en Kristrún Frostadóttir. Kæru Sjálfstæðismenn. Haldið áfram að vera hræddir við Kristrúnu Frostadóttur. Hún er framtíðin.“