Anna Kristjánsdóttir íbúi á Tenerife, skrifar um stöðuna á faraldrinum á Tenerife og á Íslandi í nýjum pistli á Facebook.
„Að undanförnu hafa Cóviðsmit stóraukist, ekki aðeins í Paradís heldur einnig á Íslandi. Ein sem ég þekki í Paradís er með þrálátan höfuðverk og brjóstverki, en lætur ekki prófa sig, ég fer bara í mótefnamælingu næst þegar ég fer til Íslands, segir hún. Samt er hún rúmliggjandi vegna verkja og heilsuleysis.
Önnur íslensk kona sem ég þekki kom við á flatbökustaðnum Rimini í fyrrakvöld og fann ekkert bragð af flatbökunni sinni. Í gær var hún veik. Ég hvatti hana endilega til að fara í PCR próf eða hraðpróf, rétt eins og hina vinkonu mína, en hún vildi sem minnst gera úr veikindum sínum. Mér finnst eins og að fólk sé orðið kærulaust gagnvart veirunni,“ skrifar Anna.
„Varðandi veikindin. Það er að sjálfsögðu ekkert að marka mig því þeir deyja ungir sem guðirnir elska og við lifum lengst sem lýðum erum leiðust, eða leiðinlegust.Já, Rimini. Eigandinn er frá Sikiley og þykir harður húsbóndi sem hlýtur að vera erfitt á tímum þar sem mikill skortur er á starfsfólki. Smalastúlkan mín frá Róm er búin að segja upp og hættir um mánaðarmótin. Þá ætlum við að detta í það saman.“
„Þetta minnir mig á það er ég kom við á skyndibitastað á Sikiley sumarið 1974 og ég keypti mér samloku með skinku og osti, en missti lyst á henni þegar ég sá að útum allt voru kakkalakkar á harðaspretti,“ skrifar Anna.
Hún segir að öðru leyti hafi gærdagurinn verið óvenju rólegur.
„Eftir pistil dagsins fékk ég mér morgunblund framyfir hádegið, en fór þá með Mjallhvíti í árseftirlit, en ár er liðið síðan ég eignaðist hana og seldi Mercý. Kom svo við í Iceland og keypti mér fisk og smjör og lambakjöt, en mikið skelfing hafa þessar vörur hækkað í verði á stuttum tíma, enda innfluttar í gegnum England sem er ekki lengur í Evrópusambandinu, því miður.
Það var loksins skemmtilega hlýtt í Paradís í gær, fór upp í 30°C og sömu spá er að sjá alla vikuna. Þetta er ágætlega ásættanlegt á daginn, en dálítið of hlýtt á nóttunni, enda erfitt að sofa í 24°C hita á nóttunni, engin loftkæling innandyra og einungis vifta til að viðhalda kælingu á minni.“