Anna Kristjánsdóttir segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum við tryggingafélagið Sjóvá. Anna sagði frá því á dögunum að brotist hefði verið inn í geymslu sem hún er með hér á landi þar sem tveimur rándýrum Canon-linsum var stolið.
Annars vegar var um að ræða 28-300 mm. linsu og hins vegar 100-400 mm. linsu og virðist þjófurinn hafa látið til skarar skríða síðastliðinn vetur, en eins og kunnugt er er Anna búsett á Tenerife.
„Ég talaði við íbúana á 1. hæð og þau tjáðu mér að brotist hefði verið inn í þeirra geymslu fyrir síðustu áramót og ýmsum verðmætum stolið og má þykja líklegt að brotist hafi verið inn í mína geymslu á sama tíma. Linsurnar sem stolið var eru að verðmæti um 650.000 krónur miðað við nýjar linsur,“ sagði Anna í færslu á mánudag og tók fram að hún þyrfti að fara í skýrslutöku hjá lögreglu og ræða málin við tryggingafélag sitt.
„Heppni að ég skuli eiga umrætt tryggingafélag (svona næstum því, allavega smáhlut) svo þau hljóta að taka vel á móti mér,“ sagði Anna í færslu sinni en miðað við nýjustu færslu hennar, sem hún birti í morgun, virðist annað hafa komið á daginn. Þar segir hún:
„Ég fékk tölvupóst í gærmorgun þar sem sumarstarfsmaður hjá Sjóvá tilkynnti mér að félagið hafnaði bótakröfu minni vegna þjófnaðar á linsunum mínum þar sem geymslan mín væri ekki innan íbúðar. Ég get ekki sagt að ég hafi glaðst vegna þessarar höfnunar. Ef satt væri væru verðmæti sem geymd eru í geymslum flestra fjölbýlishúsa á Íslandi ótryggð,“ segir Anna sem segist ekki hafa þakkað pent fyrir þetta svar. Sagði hún upp öllum tryggingum sínum hjá Sjóvá þegar í stað.
„Reyndar get ég ekki lokið uppsögninni fyrr en í dag þar sem ég er ekki með rafræn skilríki. Málinu er að sjálfsögðu ekki lokið þar sem ég hafði samband við Úrskurðarnefnd tryggingamála og mun vísa málinu þangað í dag eftir spjall við starfsfólk Seðlabankans í gær, en þar er úrskurðarnefndin til húsa,“ segir Anna sem er augljóslega allt annað en sátt.
„Það er líka nauðsynlegt að fólk sem tryggir hjá Sjóvá verður að gera sér grein fyrir því að það má ekki geyma verðmæti í læstum geymslum í læstri sameign fjölbýlishúsa því verðmætin eru ótryggð að mati umrædds sumarstarfsmanns hjá Sjóvá. Þrátt fyrir allt, þá átti ég ávallt góð samskipti við starfsfólk Sjóvár þar til í gær. Það er því ekki gaman að þurfa að ljúka viðskiptum við félagið og starfsfólk þess á þennan hátt, en hvað á ég að gera ef heimilistryggingin er einskis virði?“