Anna Sigrún Baldursdóttir, framkvæmdastjóri skrifstofu forstjóra Landspítalans, gerir létt grín að Seðlabanka Íslands og verðbólgunni, sem herjar á öll vestræn ríki um þessar mundir, í Fréttablaðinu.
„Verðbólgumarkmið Seðlabankans eru að eðli ekki ósvipuð mínum þyngdarmarkmiðum. Þetta kemur ekki á óvart því fyrir liggur að ég ber ábyrgð á hvoru tveggja, eðlilega á eigin þyngd en einnig verðbólgunni eins og annar ótíndur almenningur,“ skrifar Anna.
„Í báðum tilvikum eru sett markmið sem mögulega eru ekki beint raunhæf en ég hef tekið eftir því að árangur minn í þyngdar- og verðbólgustjórnun helst í hendur á tímaás. Til dæmis var ég í góðum málum til ársins 2018 en þá um sumarið byrjaði aðeins að halla undan fæti; nokkur kíló og smá verðbólguskrið. Ég náði tökum á þessu haustið árið eftir, en frá vori 2020 er ég í ruglinu,“ skrifar Anna.
„Ég er sumsé eitthvað frá þyngdarmarkmiðum mínum, þó ég borði hollt, hreyfi mig og skammist í sjálfri mér reglulega. Samt safnast kílóin. Ég viðurkenni að hafa gefið út óraunhæfar spár um aðlögun að þyngdarmarkmiðinu en það hefur helst gerst í mátunarklefum fataverslana. Síðustu 60 mánuði hef ég þannig verið um það bil 4–5 prósentum frá markmiðum mínum í að minnsta kosti 45 mánuði. Ekki gott.“
„Þegar kemur að verðbólgustjórnun er ég lengra frá markmiðinu, þó að vextir séu upp úr öllu valdi og ég skammist í sjálfri mér daglega. Samt vex verðbólgan. Ég hef ekki gefið út spár, við erum með sérstofnun í því, en þær eru jafnáreiðanlegar og mátunarklefaspárnar mínar. Í 10 af 60 mánuðum hefur þetta verið viðunandi hjá mér. Í 50 mánuði hefur markmiðið ekki náðst og nú er svo komið að við erum engin 4 prósent fram úr markmiðum heldur fjórfalt! Afsakið,“ skrifar Anna að lokum.