Anna Guðný er látin

Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari er látin, 64 ára að aldri. Greint var frá andláti hennar á fréttavef Vísis en hún háði erfiða en aðdáunarverða baráttu við veikindi.

Anna Guðný var mörgum í íslensku tónlistarlífi að góðu kunn og talin einn allra besti píanóleikari landsins.

Anna Guðný fæddist 6. september 1958 í Reykjavík og var hún ung að árum þegar hún hóf píanónám í Barnamúsíkskólanum. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1977, burtfararprófi frá Tónistarskólanum í Reykjavík árið 1979 og loks framhaldsnámi við Guidhall School of Music and Drama í London árið 1982.

Anna Guðný sinnti kennslu árum saman, var píanókennari við Tónlistarskólann í Reykjavík og Menntaskólann í tónlist. Þá var hún fastráðinn píanóleikari hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Í umfjöllun Vísis kemur fram að Anna Guðný hafi verið lykilmaður í klassísku tónlistarlífi landsins svo áratugum skiptir og hafa margir af fremstu klassísku söngvurum og hljóðfæraleikurum landsins minnst hennar á samfélagsmiðlum.