Anna grætur eftir vinnudaginn: „Hristist allt svo rosalega og við vorum öll öskrandi og æpandi“

Anna Þóra Björnsdóttir, sem er þekkt fyrir að reka gleraugnaverslunina Sjáðu, er gríðarlega ósátt með framkvæmdir við Vatnsstíg í miðbæ Reykjavíkur, en þar er umrædd verlsun staðsett.

Fréttablaðið fjallar um málið.

„Það hristist allt svo rosalega og við vorum öll öskrandi og æpandi inni í búð. Ég hringdi í verktakann og bað hann um að koma en hann neitar að koma því hann er í sumarbústað í fríi,“ segir Anna Þóra, sem komst ekki í vinnuna í gærmorgun vegna veikinda eftir hávaðann.

Hún segist ítrekað hafa óskað eftir því að fá að sjá leyfisskjöl og aðra pappíra vegna framkvæmdanna en er alveg tómhent hvað það varðar.

„Ég vil að framkvæmdirnar séu stöðvaðar, þetta er svo langt frá því að vera í einhverju samræmi við það sem getur gerst,“

Í vikunni hafði Anna Þóra samband við lögreglu, tvisvar, vegna framkvæmdanna.

„Húsið gjörsamlega nötraði. Það var verið að brjóta grunninn undir húsinu mínu,“ segir hún og bætir við: „Ég treysti mér ekki í vinnuna í morgun, ég er bara búin að gráta síðan ég kom heim í gær.“

Hægt er að lesa um málið í heild sinni á vef Fréttablaðsins.