Anna gagnrýnir hækkanir á Íslandi: Sjáðu hvað lítrinn af vodka kostar á Tenerife

„Í sakleysi mínu hélt ég að það væri erfitt að hækka gjöldin meira, en hvað veit ég,“ spyr Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife, á Facebook-síðu sinni.

„Ég var að lesa á vefnum að til standi að hækka ýmis gjöld til ríkisins á Íslandi, þar með talin hefðbundin hækkun á áfengis og tóbaksgjaldi. Einnig er fyrirhuguð hækkun á verði í hinni svokölluðu fríhöfn á Keflavíkurflugvelli,“ segir Anna og vísar í fréttir þess efnis að til standi að hækka ýmislegt til að draga úr þenslu og verðbólgu.

Eiga aðgerðirnar að skila 26 milljörðum króna í ríkiskassann. Meðal þess sem á að gera eru breytingar á gjaldtöku í fríhöfn með minni afslætti á áfengisgjaldi og tóbaksgjaldi en nú er. Nákvæmari útfærsla liggur ekki fyrir en ætla má að áfengi verði nokkuð dýrara í fríhöfninni en áður.

Í dag kostar einn lítri af Smirnoff Vodka 2.799 krónur í fríhöfninni en í Vínbúðunum kostar hann 8.599 krónur.

„Mér sýnist sem að verðið á sígarettum í hinni svokölluðu fríhöfn sé um tvöfalt hærra en út úr búð hér í bæ, en verðið á lítra af Smirnoff ca 1000 krónum hærra en út úr búð hérna,“ segir Anna og það þykir henni meira að segja dýrt. Kveðst hún sjálf kaupa jafngóðan vodka sem kostar aðeins 700 krónur lítrinn.

„Ég verð víst alveg jafnfull og vitlaus af honum eins og af Smirnoff, en slepp við eftirsjána af að hafa eytt ótæpilega kvöldið áður. Fer þetta ekki að minna á að verið sé að blóðmjólka mjólkurkúna?“