Anna gabbaði kaup­endur í Barna­l­oppunni: „Sem betur fer fékk ég þetta en ekki barnið mitt“

Anna Svala Guð­munds­dóttir á­kvað að henda í létt grín í Face­book hópnum Til sölu í Barna­l­oppunni en þangað inn leita margar Ís­lendingar til að kvarta yfir hinu og þessu í tengslum við Barna­l­oppuna.

„Ég keypti þessa súkku­laði­mjólk í loppunni í dag. Ég var mjög þyrst og þegar ég kom út í bíl tók ég stóran gúlp­sopa, dauð­fegin að fá eitt­hvað svalandi að drekka. Gleðin breyttist á auga­bragði í von­brigði, því mjólkin var súr og kekkj­ótt!“ skrifar Anna.

„Ég veit að ég á að skoða vel það sem ég kaupi í loppunni en mjólkin var ekki einu sinni út­runnin (rennur út 9.apríl) Ég er ekki sátt eins og gefur að skilja. Ég vildi bara benda ykkur selj­endum og kaup­endum á að yfir­fara vel allt sem er til sölu í barna­l­oppunni. Sem betur fer fékk ég þetta en ekki barnið mitt,“ bætti hún við.

Ekki eru allir sem átta sig á gríninu og spyr ein: „Þetta er kæli­vara var hún í kæli?“

„Var þetta til sölu á bás?“ spyr önnur.

Glöggir með­limir hópsins hafa þó áttað sig á því að um grín sé að ræða og segir Kristín Dögg Kristins­dóttir að hún kannast við vanda­málið. „Lenti í þessu með smjörva sem ég keypti þarna.“

Það verður að hrósa Önnu fyrir gott grín en Ís­lendingar þurfa að vera á varð­bergi því 1. apríl er handan við hornið.