Anna fengið nóg: Þeir sem nauðga fari skil­yrðis­laust í fangelsi

„Við krefjumst þess að lögum verði breytt á þann máta að skil­borðs­bundin refsing eigi ekki við þegar um jafn al­var­legt brot og nauðgun er að ræða.“

Þetta segir Anna Bentína Herman­sen, ráð­gjafi hjá Stíga­mótum, sem hefur sett af stað undir­skrifta­söfnun þar sem hvatt er til þess að þyngri refsingar séu teknar upp í nauðgunar­málum hér á landi.

Til­efnið er dómur sem féll þann 30. nóvember síðast­liðinn þegar Jón Páll Eyjólfs­son, fyrr­verandi leik­hús­stjóri Leik­fé­lags Akur­eyrar, var dæmdur í tveggja og hálfs árs skil­orðs­bundið fangelsi fyrir nauðgun. Brotið átti sér stað fyrir tólf árum.

„Skil­orðs­bundinn dómur þýðir að sak­borningurinn sleppur al­farið við fangelsis­vist, þrátt fyrir að hafa verið fundinn sekur um næst al­var­legasta brotið í mann­legu sam­fé­lagi á eftir morði,“ segir Anna Bentína á vef­síðunni Change.org þar sem finna má undir­skrifta­söfnunina.

Bent er á að á Norður­löndum, til dæmis í Sví­þjóð, sé ó­lög­legt dæma fólk til vægrar refsingar á borð við skil­orð, ef það fremur al­var­leg brot gegn lífi og limum annarra.

„Í brota­flokkum á borð við nauðgun, morð og morð­til­raun, þar sem lág­marks­refsingin er 1 ár eða meira, er ó­lög­legt að dæma hinn seka ekki til fanga­vistar. Sömu lög þyrfti að taka upp á Ís­landi.“

Segir Anna að það hljóti að vera á skjön við rétt­lætis­kennd al­mennings að fólk geti framið hrotta­legar nauðganir og að þeir ör­fáu ger­endur sem sak­felldir eru fyrir dóm­stólum þurfi ekki að verja einni mínútu bak­við lás og slá.

„Við krefjumst þess að lögum verði breytt á þann máta að skil­borðs­bundin refsing eigi ekki við þegar um jafn al­var­legt brot og nauðgun er að ræða. Það er löngu tíma­bært að refsingar fyrir grófustu glæpina endur­spegli af­leiðingarnar fyrir þol­endur – og sam­fé­lagið í heild.“

Hægt er að leggja undir­skrifta­söfnuninni lið hér.