Anna er ekki sátt: Ís­lendingar þora ekki að panta ferð til Tenerife

„Ég er ekki sátt. Um daginn laug ég því í við­tali við síð­degis­út­varp Rásar 2 að von væri á tveimur flug­véla­förmum af Ís­lendingum til Para­dísar dagana fyrir jól. Ég segi laug, því ég hafði vart sleppt orðinu er Vita eða Icelandair af­lýstu öðru fluginu,“ segir Anna Kristjáns­dóttir, íbúi á Tenerife.

Smitum hefur fjölgað heldur að undan­förnu á Tenerife og er á barmi þriðju bylgjunnar að sögn spænskra fjöl­miðla. 209 smit greindust í gær og í það heila hafa yfir tíu þúsund manns smitast þar.

„Ekki veit ég hve mörgum flugum hingað hefur verið af­lýst í sumar og haust, en það er alveg ljóst að sí­felldar niður­fellingar ferða hingað frá Ís­landi hafa haft veru­leg á­hrif á ferðir fólks hingað og það þorir ekki nokkur manneskja að panta ferð lengur með ferða­skrif­stofunum, enda jafn­víst að ferðin verður felld niður,“ segir Anna í dag­legum pistli sínum á Face­book um lífið á Tenerife.

Túr­isti greinir frá því að bæði Vita og A­ventura hafi fellt niður ferðir til Spánar fyrir jólin. Vita hugðist bjóða upp á tvær brott­farir til Tenerife og eina til Las Pal­mas en allar ferðirnar hafa nú verið sam­einaðar í eina. Ekki er víst að þessi breyting henti öllum.

Anna bendir á að þeir fáu Ís­lendingar sem hafa komið í haust til Tenerife hafi flestir farið í gegnum Bret­lands­eyjar með Ea­syJet, því erfitt sé að treysta á ís­lensku ferða­skrif­stofurnar eða Icelandair.

„Mér þykir samt vænt um starfs­fólkið hjá Icelandair, enda bera þau enga á­byrgð á niður­fellingunum og vildu gjarnan fá að fljúga alla daga. Nú er heldur betur farið að harðna á dalnum hjá Bretunum því með aukningu smita hér, aðal­lega með aukningu breskra ferða­manna eru þeir að endur­vekja kröfuna um fjór­tán daga sótt­kví fólks sem kemur frá Tenerife. Þar með hætta Bretarnir að koma og ea­syjet fellir niður flugin hingað.

Þetta endar með því að við í­búar Tenerife fáum ein að njóta sólar og sumars í Para­dís.“