Anna birti óhugnanlega mynd eftir bólusetningu: Hélt að handleggurinn væri að detta af

Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife, skellti sér í seinni sprautuna af bóluefni Pfizer síðastliðinn fimmtudag. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir það að hún virðist hafa fengið slæma sýkingu eftir sprautuna.

Anna heldur fylgjendum sínum á Facebook vel upplýstum um lífið á Tenerife og hefur hún fyrir löngu skipað sér sess meðal skemmtilegustu pistlahöfunda landsins.

Anna birti nokkuð óhugnanlega mynd á Facebook-síðu sinni í gærmorgun en þar mátti sjá rauðan og þrútinn upphandlegg hennar eftir bólusetninguna á fimmtudag. Önnu hefur oft liðið betur en eftir sprautuna á fimmtudag því aðfaranótt föstudags leið henni eins og hún hefði fengið verstu flensu um áratuga skeið.

Anna birti svo nýjan pistil í morgun þar sem hún greinir frá því að hún hafi farið á bráðamóttökuna í gær. Kveðst hún hafa borið sig aumlega, handleggurinn væri við það að detta af og hún þyrfti hjálp hið snarasta. Það er skemmst frá því að segja að Anna fékk lyf sem virðist hafa skilað tilætluðum árangri.

„Merkilegt nokk, nokkrum klukkustundum eftir að ég hafði smurt upphandlegginn með einhverjum óþverra og étið einhverjar bólgueyðandi töflur, byrjuðu roðinn og bólgan að hjaðna,“ segir Anna sem kveðst vera ánægð með að hafa haldið handleggnum.

„Þessar hremmingar mínar undanfarna daga hafa leitt eitt jákvætt af sér. Í sextán daga hafði vigtin staðið í stað eða jafnvel hækkað örlítið, en er ég vaknaði í gærmorgun var ítrasta markmiði náð og tvö kíló farin á tveimur dögum. Reyndar er það ekki alveg að marka því ég á vafalaust eftir að bæta einhverju af þessu á mig aftur, en nýjar tölur verða ekki birtar fyrr en um mánaðarmót að venju.“