Aníta Hauksdóttir segist ekki geta orða bundist vegna frétta af því að Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem hlaut sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn Anítu og þremur öðrum konum, hafi hrundið af stað fjáröflun í eigin þágu þar sem hann hyggst fara með mál sitt fyrir Mannréttindadómstól Evrópu.
Þetta kemur fram íviðtali Fréttablaðsins við Anítu. Þar segir hún og að henni og fleiri brotaþolum Jóhannesar hrylli við því að fólk fái falskar upplýsingar um manninn.
„Ég get vart orða bundist. Eftir að hafa staðið í helvíti í gegnum skýrslutökur, viðtöl hjá lögreglu, vitnisburði í héraðsdómi og setið í landsrétti með hjartað og sálina í gólfinu, eftir alla þá vanlíðan sem hann olli mér í öll þessi ár, eftir alla sálfræðitímana og vinnuna sem ég hef lagt í að ná aftur heilsu og styrk… “ skrifar Aníta í Facebook færslu um málið.
Í gær var greint frá því á Vísi að Jóhannes sagðist saklaus af þeim brotum sem hann var dæmdur fyrir. Hann hafi starfað við að veita óhefðbundna þjónustu se meðhöndlari, hann hafi í raun gert mistök með því að láta skjólstæðinga sína ekki skrifa undir samninga fyrr en 2014, hann hafi orðið ákjósanlegt skotmark þegar MeToo byltingin hófst.
„Að fréttamenn og miðlar skuli leyfa sér að bjóða geranda mínum platform til þess að vanvirða mig, niðra mig og kalla mig beinlínis lygara. Að hann fái platform enn einu sinni til þess að reyna að ljúga upp á okkur þolendur, búa til einhverjar ógeðfelldar sögur um hvað hafi gerst,“ segir Aníta.
„Ég stóð í þeirri trú að eftir niðurstöðu héraðsdóms, landsréttar og höfnun hæstaréttar að hann fengi ekki annað tækifæri til þess að ráðast á okkur opinberlega. Hann fengi refsingu og við frið.
Þá að lágmarki að staðreyndir málsins kæmu fram réttar en ekki einhver orðastríð frá fanga á litla hrauni, raðnauðgara.“
Í Facebook færslu sinni segist hún því ætla í síðasta sinn tjá sig um málið og nokkrar staðreyndir þess. Birtir hún því næst nokkrar staðreyndir beint upp úr dómsuppkvaðningu, skýrslutökum og vitnisburðum.
“án hennar samþykkis, með því að nudda kynfæri hennar utanklæða og fara síðan með hönd sína inn fyrir nærbuxur hennar og nudda kynfæri hennar og setja fingur inn í leggöng hennar, henni að óvörum, þar sem hún lá léttklædd á nuddbekk”
“án hennar samþykkis, með því að renna hönd sinni milli rasskinna hennar og setja fingur inn í leggöng hennar, henni að óvörum, þar sem hún lá á nuddbekk”
“án hennar samþykkis, með því að káfa á kynfærum hennar og setja fingur inn í leggöng hennar og endaþarm, henni að óvörum, þar sem hún lá léttklædd á nuddbekk”
“án hennar samþykkis, með því að káfa á kynfærum hennar og setja fingur inn í leggöng hennar, henni að óvörum, þar sem hún lá léttklædd á nuddbekk”
Hægt er að lesa frétt Fréttablaðsins hér.