Andri Steinn Hilmarsson, starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, greinir á Twitter frá spaugilegu atviki sem átti sér stað í verslun Vínbúðarinnar á Akureyri um helgina.
Þannig er mál með vexti að tveir vinir hans, 25 og 27 ára, skelltu sér í Vínbúðina til að kaupa sér bjór en eitthvað varð til þess að annar þeirra gleymdi að taka með sér skilríki.
„Hinn ætlar að taka bjórinn fyrir hann. Starfsmaður bannar honum það og lætur alla starfsmenn vita að það megi ekki afgreiða honum bjór. Þeir hrökkluðust í burtu.“
Færsla Andra Steins hefur vakið nokkra athygli og segir einn Twitter-notandi í athugasemd að sennilega hafi umræddur starfsmaður átt slæman dag.
Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður á Kjarnanum, svarar að bragði að Akureyringar fylgi reglum.
Vínbúðirnar leggja augljóslega mikla áherslu á að tryggja að aldursmörk til áfengiskaupa séu virt.
Tveir vinir mínir í ÁTVR á Akureyri um helgina (með aldur - 25 og 27 ára). Annar gleymir skilríkjum. Hinn ætlar að taka bjórinn fyrir hann. Starfsmaður bannar honum það og lætur alla starfsmenn vita að það megi ekki afgreiða honum bjór. Þeir hrökkluðust í burtu.
— Andri Steinn Hilmarsson (@AndriHilmarsson) February 15, 2021