„Á botninum hjá mér eru sjálfsvígshugsanir, krónískir verkir um allan líkamann, misnotkun á áfengi í áratugi, að líða yfir mig einu sinn á dag," segir Andri Einarsson þegar hann lýsir ástandi sínu áður en hann tók ábyrgð á lífi sínu og lærði að draga andan djúpt.
Andri var gestur Ásdísar Olsen í þættinum Undir yfirborðið á Hringbraut, en margir Íslendingar hafa lært kuldaþjálfun og öndun hjá Andra sem er einn reyndasti Wim Hof þjálfari landsins. Í þættinum kennir Andri áhorfendum einfaldar öndunaræfingar sem róa taugakerfið og bæta líðan mjög hratt. Hann segir að andvarpið sé allra meina bót og leggur til að fólk dæsi sem oftast.
Nánari upplýsingar um önudnartækni og námskeið hjá Andra má finna hjá ANDRI ICELAND: https://www.andriiceland.com/is
Sjá brot úr þættinum hér að neðan. - Allt viðtalið er í spilaranum hér neðst.
Andri er við hesta heilsu í dag og einn helsti WimHof kennari landsins og er viðmælandi Ásdísar Olsen í Undir yfirborðið í kvöld þar sem hann útskýrir hvernig við getum róað taugakerfið og tekið ábyrgð á lífi okkar með andardrættinum.
Undir yfirborðið er á dagskrá Hringbrautar á mánudagskvöldum kl. 19 og 21