Andri í Jæja gleðst yfir upp­sögnum í Eflingu: „Ó­geðs­lega ó­smekk­legt“

Mikil um­ræða hefur skapast á sam­fé­lags­miðlum eftir að Sól­veig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, á­kvað að reka allt starfs­fólk Eflingar.

Andri Sigurðs­son sem meðal annars heldur úti á­róður­síðunni Jæja á Face­book sem studdi dyggi­lega við fram­boð Sól­veigar Önnu til formanns virðist ekki gefa mikið fyrir kvartanir net­verja sem undra sig á því hvernig stéttar­fé­lag getur staðið að hóp­upp­sögn.

Fata­hönnuðurinn Guð­mundur Jörunds­son skrifar: „Þetta er next le­vel sturlun þið hljótið öll að sjá það.“ En fyrir neðan færslu Guð­mundar deilir Sigurður Ingi Ri­car­do skila­boðum frá Andra þar sem hann gerir grín að tístinu hans Guð­mundar: „Twitter libbarnir eru að missa sig yfir þessu,“ skrifar Andri og vísar þar til liberals eða frjás­lyndra. Sigurður segir þar Andra gleðjast yfir uppsögnunum í Eflingu.

Hall­dór Auðar Svans­son, vara­þing­maður Pírata, segir um­mæli Andra „ó­geðs­lega ó­smekk­leg“ sér­stak­lega í ljósi þess ein og Frétta­blaðið greindi frá þá fékk Andri 20 milljónir í verk­taka­greiðslur fyrir vef­síðu­hönnun fyrir Eflingu án þess að skila af sér full­búni vef­síðu.

„Líka ó­geðs­lega ó­smekk­legt að maður sem hefur verið í verk­töku hjá þessu fé­lagi og er senni­lega ekkert að fara að missa spón úr þeim aski sínum sé að tjá sig svona um þessar upp­sagnir. Er ekki stundum bara betra að þegja?“ skrifar Hall­dór.

Viðar Þor­steins­son hjá Eflingu er góður vinur Andra og reyndi hann að fast­ráða hann á sínum tíma en stjórn Eflingar hafnaði því. Ottar Makuch leggur orð í belg í þræðinum og segir „ Hann hlýtur að fá fast­ráðningu“