Andrés Jónsson almannatengill telur að Dagur B. Eggertsson verði ekki lengi á hliðarlínunni þegar Einar Þorsteinsson tekur við af honum sem borgarstjóri. Nýr meirihluti var kynntur til leiks á mánudag og mun Dagur byrja kjörtímabilið í borgarstjórastólnum áður en Einar tekur við af honum.
Í Fréttablaðinu í dag er rætt við Andrés um þessa skiptingu og segir hann að hún hafi ekki komið honum á óvart. Hún muni raunar gera Degi kleift að fara út á eigin forsendum þegar þar að kemur, en Dagur hefur verið orðaður við landsmálin að undanförnu og formannsstöðuna hjá Samfylkingunni.
„Honum er ekki hafnað og hann nær að fylgja aðeins eftir sinni arf leifð þannig að ég held að þetta sé óskastaða,“ segir Andrés við Fréttablaðið og bætir við:
„Það er erfitt að sjá fyrir sér að hann ætli að vera lengi á bekknum hjá Einari þegar hann er tekinn við. Þetta ýtir allavega undir þá mynd að hann sé á útleið úr borgarmálunum, þó ekki víst að hann sé að fara út úr stjórnmálum.“
Andrés segir málefnasamninginn einnig hafa verið kynntan vel af nýjum meirihluta. Ásýndin hafi verið flott, hvernig þau kynntu málið og skiptust á að svara fjölmiðlum á blaðamannafundi á mánudag.
„Það gefur ákveðna vísbendingu um að þessi meirihluti verði sterkur, hvernig hann hélt á þessum viðræðum,“ segir Andrés Jónsson.