Andrés reynir að skóla Gunnar Smára til í blaðamennsku

Andrés Jónsson almannatengill segir að fjölmiðill Sósíalistaflokksins fari ekki vel af stað undir stjórn hins reynda Gunnars Smára Egilssonar.

Vefmiðill Samstöðvarinnar birti myndir og nöfn tveggja manna sem grunaðir eru um skipulagningu hryðjuverka hér á landi. Greint var frá því í vikunni að mennirnir hefðu rætt um að myrða Gunnar Smára, sem er einn af stofnendum Sósíalistaflokksins og einn reyndasti fjölmiðlamaður landsins, og Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar.

Gunnar Smári brást við með því að auglýsa eftir myndum af mönnunum tveimur á samfélagsmiðlum. Það bar árangur og birti Samstöðin nöfn og myndir af mönnunum á vef sínum í gær. Gunnar Smári er skráður ábyrgðarmaður frétta á Samstöðinni.

Andrés telur á Twitter að þetta útspil hafi ekki verið sniðugt.

„Fjölmiðill Sósíalistaflokksins fer ekki vel af stað undir stjórn hins reynda ritstjóra Gunnars Smára. Tekur ákvörðun um mynd- og nafnbirtingu í máli þar sem hann sjálfur búinn að gefa aðilaskýrslu. Hversu göfugt sem markmiðið er þá eiga fjölmiðlar ekki að beita sér í þágu eigenda,“ segir hann.