Andrés: Ólíðandi að ekki sé unnið að kynrænu sjálfræði

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður utan flokka, segir stórfurðulegt að félagsmálaráðuneytið sé á allt öðrum stað en umhverfisráðuneytið þegar kemur að því að vinna í samræmi við lög um kynrænt sjálfræði.

„Fyrir skemmstu spurði ég tvo ráðherra hvenær þess sé að vænta að þeir endurskoði reglur um búningsaðstöðu og salerni. Það er ein af þeim breytingum sem leiða af þeim sjálfsögðu réttindum fólks að geta sjálft tekið ákvarðanir um eigið kyn, sem leiða af ársgömlum lögum um kynrænt sjálfræði,“ segir Andrés Ingi á Facebook.

„Umhverfis- og auðlindaráðherra svaraði því til að búið væri að greina þær tvær reglugerðir þar sem þörf væri á breytingum og að slíkar breytingar væru í vinnslu í ráðuneytinu. Sumsé, þar stefnir allt í rétta átt.“
Engin slík vinna hefur hins vegar átt sér stað í félagsmálaráðuneytinu. „Ráðherranum þykir „vert að skoða hvort og þá með hvaða hætti“ rétt sé að breyta reglunum – en það mun fara eftir verkefnastöðu innan ráðuneytisins hvenær unnt verður að ráðast í slíka vinnu. Sumsé, ekkert að ske.“
Andrés segir þetta ólíðandi:

„Það er stórfurðulegt að tvö ráðuneyti séu á jafn gjörólíkum stað varðandi lög sem snerta sambærilegar reglur hjá þeim báðum. Heilt ár er síðan Alþingi samþykkti lög um kynrænt sjálfræði. Það er ólíðandi að ekki sé unnið í samræmi við þau innan félagsmálaráðuneytisins!“

Hér má lesa svar Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfisráðherra.

Hér má lesa svar Ásmundar Einars Daðasonar félagsmálaráðherra.