Andrés með ó­venju­legt sparnaðar­ráð: „Besta fjár­festing mín á hverju ári“

Al­manna­tengilinn Andrés Jóns­son birtir heldur betur ó­venju­legt sparnaðar­ráð inn í Face­book hópinn fjár­mála­tips. Hann segir þetta spara sér ein­stak­lega mikinn pening ár­lega.

„Hér kemur sparnaðar­ráð:

Besta fjár­­festingin mín á hverju ári er 2.100 kr fyrir að til­­kynna kredit­kortið "stolið".

Ég næ þannig að segja upp alls kyns á­­skriftum sem ég nota lítið eða ekkert (og sumum sem ég vissi ekki einu sinni af),“ skrifar Andrés.

Yfir 300 manns hafa like-að við færslu Andrésar og taka margir undir.

Orri Ei­ríks­son, bendir honum á að þetta eigi ekki við um allar á­skriftir heldur „erfast“ sumar yfir á nýja kortið. „Það er spurt hjá bankanum hvort maður vilji það. Ég segi bara "Nei takk!“ segir Andrés.