Andrés Ingi ekki sáttur: Vill auð­legðar­skatt og ofur­þrep á ofur­arf

„Mis­skipting er ekki náttúru­lög­mál heldur mannanna verk og af­rakstur á­kvarðana sem margar hverjar eru teknar hér á þingi,“ sagði Andrés Ingi Jóns­son, ó­háður þing­maður, í um­ræðum um störf þingsins á Al­þingi í gær.

Andrés Ingi vísaði þarna í ný­legar fréttir, annars vegar um fram­sel aðal­eig­enda Sam­herja á hluta­bréfum til barna sinna og hins vegar um eignir Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar sem metnar eru á 275 milljarða króna sam­kvæmt út­tekt Sunday Times um helgina.

„Tekju­jöfnuður á Ís­landi er með því mesta sem gerist en það segir bara hálfa söguna því að mis­skipting getur birst með öðrum hætti. Mig langar að nefna tvö ný­leg dæmi. Björg­ólfur Thor Björg­ólfs­son birtist um helgina á há­karla­lista Sunday Times með eignir sem eru metnar á 275 milljarða kr. Til saman­burðar skiluðu er­lendir ferða­menn nánast sömu upp­hæð inn í ís­lenskt sam­fé­lag á síðasta ári. Allir ferða­menn — einn maður,“ sagði Andrés Ingi sem hélt á­fram:

„Stærstu eig­endur Sam­herja fram­seldu síðan í síðustu viku hluta­bréf til barna sinna. Þetta er væntan­lega stærsta per­sónu­lega eigna­til­færslu Ís­lands­sögunnar þar sem a.m.k. 60–70 milljarðar kr. færðust á milli kyn­slóða. Til saman­burðar erfðu árið 2018 ein­staklingar sam­tals 47 milljarða kr., lægri upp­hæð en hin fengu. Grunnurinn að Sam­herja­veldinu er nýting á sam­eigin­legri auð­lind þjóðarinnar. Hvernig safnast svona stjarn­fræði­legur auður? Hvernig er hann skatt­lagður?“

Andrés Ingi sagði að við­spyrnan fram undan verði að byggja á sann­girni og jöfnuði. Hluti af vinnunni fram undan þurfi að vera auknar skatt­tekjur frá fólki og fyrir­tækjum sem eru af­lögu­fær.

„Hér þarf að inn­leiða aftur auð­legðar­skatt þannig að fólk sem á hundruð milljóna og milljarða í hreina eign fái að leggja meira til sam­fé­lagsins. Við þurfum að styrkja fjár­magns­tekju­skatt, þrepa­skipta honum og tengja við arð­greiðslur,“ sagði Andrés og bætti við að erfða­fjár­skatti ætti að um­bylta.

„Honum þarf að þrepa­skipta ræki­lega og setja ofur­þrep á ofur­arf frekar en flatan skatt í lágri prósentu. Risa­vaxnar eigna­til­færslur á milli kyn­slóða við­halda ó­jöfnuði og stétta­skiptingu,“ sagði Andrés Ingi sem færði Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra á­kveðin skila­boð:

„Fjár­mála­ráð­herra vill stefna í átt að Ís­landi 2,0. Hann þarf að muna þegar hann vinnur næsta fjár­laga­frum­varp að í sam­fé­laginu eru ótal tæki­færi til að afla meiri tekna fyrir ríkis­sjóð af sann­girni áður en hann leggur til að skera niður í opin­beru þjónustunni sem við stólum öll á. Mis­skipting er ekki náttúru­lög­mál heldur mannanna verk og af­rakstur á­kvarðana sem margar hverjar eru teknar hér á þingi.“