„Trans fólk veigrar sér oft við að leiðrétta kynskráningu sína í þjóðskrá. Ástæðan er einföld: enn eru til staðar fordómar gagnvart trans fólki, ekki aðeins í alþjóðasamfélaginu, heldur einnig hér heima fyrir. Fólki með hlutlausa skráningu kyns í vegabréfum er nefnilega hætt við að finna fyrir fordómum og verða fyrir áreitni á ferðalögum vegna kynskráningarinnar,“ skrifar Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, í nýjum pistli á Vísi.
„Ríkisstjórn Íslands hefur barið sér á brjóst og sagst standa með kynsegin fólki – svo ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar svar barst frá dómsmálaráðherra við fyrirspurn sem ég lagði fram um stöðu hlutlausrar skráningar kyns í vegabréfum.“
„Í svarinu kemur fram að ráðuneytið hafi ekki gripið til sérstakra aðgerða til að verja handhafa vegabréfa með hlutlausa kynskráningu fyrir áreitni eða fordómum. Enn fremur hefur ekkert verið athugað eða rætt um það hvernig megi breyta reglum um vegabréf þannig að dregið sé úr hættunni á slíku áreiti. Ráðuneytið veit ekki einu sinni hvort eða hvaða ríki viðurkenni vegabréf erlendra ríkisborgara með hlutlausa skráningu kyns,“ heldur Andrés áfram.
Andrés segir að ljóst er af svörunum að dómsmálaráðuneytið er algjörlega úti að aka:
„Dómsmálaráðuneytið hefur ekki upplýsingar…“, „Upplýsingar [...] liggja ekki fyrir í dómsmálaráðuneytinu…“, „Ekki hefur komið til umræðu í dómsmálaráðuneytinu…“, „Ekki hefur komið til athugunar í dómsmálaráðuneytinu…“, „Dómsmálaráðuneytinu hafa ekki borist upplýsingar…“
„Þetta er sennilega eitt kærulausasta og slakasta svar sem ég hef fengið við fyrirspurn á ferli mínum sem þingmaður. Hvernig ætlar ríkisstjórnin að halda því fram að hún standi vörð um mannréttindi, vinni gegn fordómum eða berjist gegn hatursorðræðu ef hún leggur engan metnað í að skoða stöðu jaðarsettra hópa? Það dugar nefnilega ekki bara að segjast ætla að gera eitthvað, það þarf að skoða stöðuna í alvöru, móta aðgerðir og hrinda þeim í framkvæmd. Annars er hópnum lítill greiði gerður. Það vekur upp falskar vonir og leiðir til sársaukafullra vonbrigða þegar á hólminn er komið,“ skrifar Andrés.
Hægt er að lesa pistil Andrésar í heild sinni hér.