Margir bíða spenntir eftir að ný ríkisstjórn líti dagsins ljós. Nokkur atriði hafa spurst út, þar á meðal að búið verði til nýtt innviðaráðuneyti. Andrés Jónsson almannatengill hefur rýnt í stöðuna og birtir eftirfarandi ráðherralista á Twitter:
Ágiskun... pic.twitter.com/DozE6P1Gqi
— Andrés Jónsson (@andresjons) November 18, 2021
Nokkrar hrókeringar eiga sér þarna stað á ráðherraembættum, þar á meðal að Guðlaugur Þór Þórðarson fari aftur í heilbrigðisráðuneytið í stað Svandísar Svavarsdóttur sem tæki við dómsmálaráðuneytinu. Þá færi Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir í fjármálaráðuneytið og Bjarni Benediktsson í utanríkisráðuneytið.
Andrés veðjar svo að þetta verði síðasta kjörtímabil Bjarna:
„Er smá risky ágiskun hjá mér. Ég er að veðja á að hann ætli að hætta eftir þetta kjörtímabil og langi að gera eitthvað nýtt síðustu 4 árin sín í stjórnmálum,“ segir hann. „Hann er að verða búinn að vera jafn lengi formaður og Davíð (nær því 2023). Alltaf gott að þekkja sinn vitjunartíma.“
Andrési var bent á að Sjálfstæðismenn séu ólíklegir að sleppa dómsmálaráðuneytinu.
„Skil hvað þú meinar en VG hefur haft það áður og gerði enga skandala. Svo skiptir það ekki jafn miklu fyrir þau og það gerði áður.“
Listinn er stuttur þegar kemur að mögulegum forseta Alþingis: „Birgi Ármannsson eða Bjarkey Olsen.“