Andrés afhjúpar leyndarmál bak við atvinnuauglýsingar: „Segir ekkert um hæfileika þína í starfi“

Sú þróun hefur átt sér stað á síðustu árum að í atvinnuauglýsingum sé krafist háskólamenntunar þrátt fyrir að engin rök séu fyrir því.

Andrés Jónsson almannatengill sagði í þættinum Reykjavík síðdegis í gær að þetta sé komið úr böndunum. Hann aðstoðar marga við að finna starfsfólk, hann segir að í raun sé ekkert verið að leita sérstaklega eftir slíkri menntun. Sérstök menntun þurfi auðvitað þegar um er að ræða lækna eða verkfræðinga.

„Þú getur verið sjálflærður í rosalega mörgu,“ sagði hann. Ástæðan fyrir því að beðið sé um háskólamenntun sé einföld: „Þetta er til að þurfa ekki að skoða jafn marga. Það er það sem fólk er aðallega að horfa á. Hvað segir háskólapróf?,“ spyr hann. Í raun og veru að viðkomandi hafi einbeitt sér að einu fagi í þrjú ár eða fimm. „Það segir ekkert um hæfileika þína í starfi.“

Þá úreldast háskólaprófin mjög hratt og margir sem fylgist vel með séu framar þeim sem hafi gamla háskólagráðu.

Hvetur hann þá sem sjá starf sem þeim líst á en uppfylla ekki menntunarkröfuna um að prófa og sækja um, það þarf þó að vera innan marka hins raunsæja.

„Ef þú finnst þér eiga eitthvað í starfið, færðu bara rök fyrir því í kynningabréfinu. Þú þarft að útskýra það.“