„Við erum ekki öll í þessu saman, ég er að minnsta kosti alveg hætt. Þetta er fullkomlega óboðlegt,“ segir Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, um fréttir þess efnis að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hafi lagt til 20 manna samkomubann.
Búist er við að endanleg ákvörðun um þetta liggi fyrir eftir fund ríkisstjórnarinnar á morgun, en hingað til hafa heilbrigðisyfirvöld farið nokkuð vel eftir því sem Þórólfur leggur til. Vísir greindi frá því í dag að Þórólfur hefði einnig lagt til að skólastarf myndi hefjast síðar en áætlað var, eða þann 10. janúar næstkomandi.
„20 manns? Nær allri tví- eða þríbólusettir, innlagnir ekki komist neins staðar nálægt því sem var síðasta vetur í stærstu bylgjum ársins. Frumgögn um ómíkrón sýna margfalt lægri innlagnatíðni. Við erum ekki öll í þessu saman, ég er amk alveg hætt. Þetta er fullkomlega óboðlegt,“ segir Andrea og bætir við að Þórólfur láti eins og bóluefnin hafi enga þýðingu gagnvart ómíkrón-afbrigðinu.
„Þær draga svo sannarlega úr veikindum, þótt þau komi ekki í veg fyrir smit. Það gerðu þau reyndar ekki heldur við fyrri afbrigðum. Við erum eingöngu á „núllpunkti” hvað varðar takmarkanir, ekki annað,“ segir hún meðal annars.
20 manns? Nær allri tví- eða þríbólusettir, innlagnir ekki komist neins staðar nálægt því sem var síðasta vetur í stærstu bylgjum ársins. Frumgögn um ómíkrón sýna margfalt lægri innlagnatíðni. Við erum ekki öll í þessu saman, ég er amk alveg hætt. Þetta er fullkomlega óboðlegt. https://t.co/xvZuQwF8Dr
— Andrea Sigurðardóttir (@andreasig) December 20, 2021