Andrea Sigurðardóttir, samskiptastjóri Marel og fyrrverandi blaðamaður á Viðskiptablaðinu, segir í grein á Vísi að kostnaður við skrifstofu borgarstjóra hafi aukist um meira en 500 prósent síðasta áratug.
Andrea, sem lýsir opinberlega stuðningi við Hildi Björnsdóttur oddvitaframbjóðanda Sjálfstæðisflokksins, fer ekki mjúklega um skrifstofu Dags B. Eggertssonar borgarstjóra og Þorsteins Gunnarssonar borgarritara.
„Alls starfa nú 60 starfsmenn á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Kostnaður við skrifstofu borgarstjóra hefur vaxið úr 157 milljónum króna í 800 milljónir á tæpum áratug eða um 510 prósent,“ segir hún.
„Reykjavíkurborg er með 10 upplýsingafulltrúa þegar stærstu fyrirtækin í Kauphöll Íslands, sem sum velta tugum milljarða króna árlega, hafa aðeins einn. Sum hafa engan.“
Á sama tíma hafi skuldir borgarinnar aukist um 100 milljarða króna. „Rekstrarkostnaður borgarinnar á hvern íbúa er um 20% hærri en hjá nágrannasveitarfélögunum,“ segir Andrea.
„Það sem er dapurlegast við stjórnartíð Dags er að útþaninn rekstur Reykjavíkurborgar hefur ekki skilað sér í bættri þjónustu við borgarbúa.“
Þvert á móti hafi lögbundin þjónusta verið vanrækt. „Sorphirðu, þrifum og almennri umhirðu er ábótavant. Biðlistar á leikskólum lengjast og ef börn eru svo heppin að fá pláss er það oft í órafjarlægð frá heimili. Nauðsynlegu viðhaldi og endurnýjun skólahúsnæðis (Fossvogur) og íþróttaaðstöðu fyrir börn (Laugardalur) er ekki sinnt þrátt fyrir hávært ákall og örvæntingu foreldra.“