Andrea hlær að Þór­ólfi: „Ég þarf alla­vega ekki að breyta nafninu mínu“

Andrea Sigurðar­dóttir, blaða­maður Við­skipta­blaðsins, hafði ekki mikla trú á því að öllum sótt­varnar­að­gerðum yrði af­létt 18. nóvember eins og stóð til sam­kvæmt á­ætlun ríkis­stjórnarinnar. Hún gekk svo langt að segja að að mætti kalla hana hund ef áætlunin myndi halda.

„Og nei ég ekki að fara gleðjast yfir eða verða þakk­lát fyrir að að­eins sé slakað á ó­rök­studdum og til­efnis­lausum felsis­tak­mörkunum. Smit­tíðni er á upp­leið og ég skal hundur heita ef ekki verður dregið í land með al­gjöru af­léttingu innan 4 vikna,“ skrifaði Andrea þann 19. októ­ber þegar Svan­dís Svavars­dóttir heil­brigðis­ráð­herra til­kynnti um af­léttingar­á­ætlun ríkis­stjórninnar.

Svo virðist sem Andrea hafi haft rétt fyrir sér því Þór­ólfur Guðna­son, sótt­varna­læknir segir í sam­tali við Vísi í dag að það sé mögu­legt að það þurfi að endur­skoða af­léttingar eftir að átta­tíu greindust með kórónu­veiruna innan­lands í gær.

Þór­ólfur segist þó ekki vera búinn að á­kveða að grípa í taumana aftur en þörf á því mun ráðast á næstunni.

Andrea hlær af þessu og skrifar: „hahahaha no shit. Stefnir alla­vega ekki í að ég þurfi breyta nafninu mínu í Hundur 18. nóv.“