Andrea ekki sátt við svarið sem hún fékk á upplýsingafundinum: „Ótrúlegt ógagnsæi!“

Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, er ekki par sátt við svörin sem hún fékk á upplýsingafundi Almannavarna í morgun. Andrea beindi spurningu sinni að Guðlaugu Rakel Guðjónsdóttur, starfandi forstjóra Landspítala, og spurði hversu margir væru inniliggjandi vegna Covid en ekki „með Covid“ á Landspítala og hvort það ætti að birta þær tölur líkt og gert væri erlendis.

Guðlaug svaraði henni að sjúklingar sem greindust með Covid á legudeild þurftu sömu þjónustu og þeir sem komi inn vegna Covid, það þyrfti að einangra þá. „Það breytir í sjálfu sér engu í viðbragðinu,“ sagði Guðlaug.

Andrea er ekki sátt við þetta svar. „Ég fékk ekki að koma að athugasemd við svar forstjóra LSH,“ segir hún á Twitter. „Gögnin skipta máli til þess að hægt sé að meta tíðni alvarlegra veikinda. Það er ekki hægt þegar fjöldi í tölfræðinni er ekki inniliggjandi vegna sjúkdómsins. Þetta þótti mér ekki gott svar.“

Andrea heldur áfram:

„En sem sagt helmingur ómíkrón innlagðra nú er þar ekki vegna covid, heldur af öðrum ástæðum og þetta er bara punktstaða. Það verður að birta þessi gögn. Ótrúlegt ógagnsæi!“