Einn sjúklingur lést á síðasta sólarhring á Landspítalanum vegna COVID-19. Þetta kemur fram í frétt á vef Landspítalans og er aðstandendum vottuð samúð.
Þetta er fyrsta andlátið í tæpar þrjár vikur hér á landi vegna COVID-19, en alls hafa 29 einstaklingar látist í faraldrinum til þessa. Frá því í septembermánuði hafa nítján látist en þá hófst hin svokallaða þriðja bylgja faraldursins.