Tuttugu og sex hafa nú látist hér á landi eftir að hafa smitast af COVID-19, en einn einstaklingur lést síðasta sólarhring á Landspítalanum vegna veirunnar. Frá þessu er greint á vef spítalans og er aðstandendum vottuð samúð.
Langflest dauðsföllin hafa orðið í þriðju bylgju faraldursins sem hófst í haust, en alls hafa sextán látist síðan veiran náði aftur vexti eftir að hafa haft tiltölulega hægt um sig í sumar.
Faraldurinn hefur verið á niðurleið hér á landi undanfarna daga, en alls greindust 11 innanlandssmit síðasta sólarhring. Enn eru þó 55 á sjúkrahúsi og fjórir á gjörgæslu vegna veirunnar.