And­lát: Dr. Gis­lí Arnór Víkings­son

Dr. Gísli Arn­ór Vík­ings­­son, sjáv­ar­líf­­fræðing­ur hjá Haf­rann­sókna­stofnun, er lát­inn, 65 ára að aldri. Hann varð bráð­kvadd­ur í fjöl­­skyldu­­ferð á Ítal­íu. Þetta kemur fram í frétt mbl.is.

Gísli fædd­ist hinn 5. ág­úst 1956 og voru for­eldr­ar hans hjón­in Vík­ing­ur Heiðar Arn­órs­­son, lækn­ir og pró­­fess­or, og Stef­an­ía Gísla­dótt­ir.

Gísli ólst upp í Reykja­­vík og svo í Sví­þjóð, þangað sem fjöl­­skyld­an flutti þegar faðir hans fór í fram­halds­­mennt­un í lækn­is­­fræði. Hann lauk B.Sc. prófi í líf­­fræði við Há­­skóla Ís­lands árið 1979 og hélt síðan til Dan­­merk­ur, þar sem hann lauk cand.scient. prófi í at­­ferl­is­vist­­fræði frá Kaup­manna­hafn­ar­há­­skóla árið 1985.

„Á meðan á nám­inu í Dan­­mörku stóð kynnt­ist hann konu sinni, Guð­rúnu Ögmunds­dótt­ur, fé­lags­ráð­gjafa og al­þing­is­manni. Þau hófu sam­búð 1980 og eignuðust þau hjón­in tvö börn, Ögmund Viðar Rún­ars­­son og Ingi­björgu Helgu Gísla­dótt­ur. Guð­rún lést á gaml­árs­­dag 2019,“ segir í frétt mbl.is

Heim­kom­inn úr námi starfaði Gísli stutt hjá Blóð­bank­an­um, en réðist til Haf­rann­­sókna­­stofn­un­ar 1986, þar sem hann starfaði æ síðan. Hann vann þar í upp­­hafi náið með Jó­hanni Sig­ur­jóns­­syni, sem þá var eini hvala­­sér­­­fræðing­ur landins, en auk­inn kraft­ur var þá að fær­ast í hval­rann­sóknir. Þegar Jó­hann var ráðinn for­­stjóri Haf­rann­­sókna­­stofn­un­ar, tók Gísli við sem yf­ir­­maður hval­rann­sókna og á­vann sér virðingu sem fremsti hvala­­sér­­­fræðing­ur lands­ins.

Árið 2016 hlaut Gísli doktors­gráðu í vist­­fræði hvala frá sjáv­ar­líf­­fræði­deild Há­­skól­ans í Tromsø í Nor­egi, en rit­­gerð hans fjallaði um ára­tuga­lang­ar breyt­ing­ar á út­breiðslu, stofn­­stærðum og fæðu­vist­­fræði skíðis­hvala í haf­inu um­­hverf­is Ís­land og hvort þar ræddi um af­­leiðing­ar lofts­lags­breyt­inga.

Gísli var hneigður til tón­list­ar eins og fleiri í fjöl­­skyld­unni og lék m.a. með hljóm­sveit­un­um Kamar­org­hestum og Punt­strá­un­um á árum áður.