Andie skilur ekkert í kæstri skötu: „Rís hún upp frá dauðum og étur þig?“

Andie Fontaine, blaðamaður Grapevine og fyrrverandi varaþingmaður VG, skilur ekkert í því hvers vegna skata hér á landi rennur út.

Andie, sem hefur búið hér á landi í meira en tuttugu ár, segir á Twitter að hún skilji ekki og muni aldrei skilja hvers vegna kæst skata er merkt með „Best fyrir. „Hún er ekkert að fara að versna“ segir hún. „Hvað er að fara að gerast eftir þessa dagsetningu? Rís hún upp frá dauðum og étur þig?“

Margir taka undir með þessari athugun Andie, en hún bætir við: „Tæknilega er þetta „best fyrir“ þannig að kannski rennur hún ekki út. Til að þetta sé nákvæmt ætti að standa „verst eftir“.