Ánægðustu viðskiptavinirnir hjá bensínstöð costco

Þann 25. janúar síðastliðinn voru niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2018 kynntar. Ánægðustu viðskiptavinirnir eru hjá bensínstöð Costco en Nova, Vínbúðir ÁTVR, BYKO og Icelandair hlutu einnig viðurkenningar í ár. Er þetta tuttugasta árið sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti.

Í ár voru afhentar viðurkenningar á fimm mörkuðum. Á eldsneytismarkaði fékk bensínstöð Costco 82,3 stig af 100 mögulegum, á farsímamarkaði fékk Nova  75,8 stig, á smásölumarkaði fengu Vínbúðir ÁTVR 73,6 stig, á byggingavörumarkaði fékk BYKO 68,9 stig og á flugmarkaði fékk Icelandair 75,4 stig.

Costco eldsneyti var einnig með marktækt hæstu einkunn allra fyrirtækja sem mæld voru í Ánægjuvoginni þetta árið og eru viðskiptavinir eldsneytissölu Costco þar af leiðandi þeir ánægðustu á Íslandi. Costco er þó ekki með ánægðustu viðskiptavinina á smásölumarkaði, en þar var Costco með þriðju lægstu einkunnina, 65,9 stig. 

Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísis og sá Zenter rannsóknir um framkvæmd á mælingunum.