„Ameríkudraumur Hemma Gunn varð að engu í Lissabon vegna skondins atviks“

Halldór Einarsson, stofnandi Henson hefur einstaklega skemmtilega frásagnargáfu en hann er gestur Sigurðar K. Kolbeinssonar í Hlaðvarpinu Lífið er lag. Halldór rifjar upp upphafsár Henson og hvernig þrautseigjan í gegnum alls kyns höft og hindranir tóku á taugarnar í rekstrinum á árum áður. Halldór er fyrrverandi leikmaður Vals í knattspyrnu og var í eitt skipti valinn í íslenska landsliðið en kom þó ekki inná og gerir Halldór óspart grín af sjálfum sér í þeim efnum, segist alltaf hafa verið nr. 2. Þá rifjar hann upp skondið atvik sem átti sér stað á flugvellinum í Lissabon í september 1968 þegar Valsmenn voru á heimleið eftir 8-1 tap gegn Benfica þar sem Knattspyrnumaður Evrópu það árið, Eusebio, kom við sögu, einkum viku áður þegar aðsóknarmet var sett á Laugardalsvelli í leik liðanna sem endaði með sögufrægu jafntefli 0-0. Hemmi var besti vinur Halldórs og Halldór lýsir því þegar bandarísk hjón sáu þennan fagra unga svein á flugvellinum og ætluðu himinn höndum að taka þar sem hann reyndist nánast vera tvífari sonar þeirra sem hafði látist skömmu áður í Víetnam stríðinu. Þau hófu spjall við Hermann og voru farin að minnast á það að bjóða honum til Bandaríkjanna og kosta skólavist fyrir hann og Hemmi stóð þarna í flugstöðinni undrandi en spenntur og virtist vera að vinna stærsta Lottóvinning lífs síns. Þá gerðist það að Hemmi náði í styttu af Eusebio sem var á að giska 40 cm. Þegar Hemmi togaði í spotta aftan á styttunni lyftist veifa sem Eusebio hélt á í annarri hendi en viti menn; „reis þar þriðji fóturinn“ undan veifunni. Konu greyinu brá svo í brún að hún strunsaði í burtu og eiginmaðurinn skömmu síðar, algerlega hneykslaður og vonsvikinn yfir þessu háttalagi Hemma. Með því rann Ameríkudraumur Hemma Gunn út í sjóinn en hann lét sér það samt í léttu rúmi liggja.

Hlaðvarpið Lífið er lag er hægt að nálgast á Spotify sem og flestum öðrum streymisveitum og einnig á heimasíðunni ferdaskrifstofaeldriborgara.is