Alvotech metið á 300 milljarða króna: „Gríðarlega stór áfangi“

„Þetta er gríðarlega stór áfangi fyrir Alvotech og staðfesting á því öfluga starfi sem starfsfólk Alvotech hefur unnið að undanförnu.“

Þetta segir Róbert Wessman, stjórnarformaður Alvotech, í samtali við Markaðinn í Fréttablaðinu í gær en þar var greint frá því að eigendur breytanlegra skuldabréfa Alvotech hefðu ákveðið að nýta rétt sinn til að breyta skuldabréfum að fjárhæð 106 milljónir Bandaríkjadala, eða 13 milljarða króna, í hlutafé sem verðmetur Alvotech á um 300 milljarða króna.

Eins og greint hefur verið frá vinnur fyrirtækið nú að þróun sjö líftæknilyfja, þar á meðal hliðstæðu lyfsins Humira, sem er söluhæsta lyf heims. Líftæknilyf þykja nokkuð flókin í þróun og framleiðslu enda framleidd með hjálp lífvera.

Í fréttinni er bent á að á næstu árum renni mörg einkaleyfi líftæknilyfja út og skapar það tækifæri fyrir fyrirtæki á borð við Alvotech til að setja sambærileg lyf á markað.

Lýsti Róbert því í samtali við Markaðinn á dögunum að áfangagreiðslur, sem kveðið er á um í þeim fjölda samninga sem Alvotech hefur gert um sölu og dreifingu, geti skilað íslenska líftæknifyrirtækinu allt að 130 milljarða króna tekjum á næstu árum.

Þá stefnir Alvotech að skráningu á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum á þessu ári.